153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:34]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Mig langar að halda aðeins áfram með þessa umræðu því að hún er mjög áhugaverð. Svona utan frá er stundum kannski erfitt að sjá hvað er að gerast inni á þingi, en ef maður reynir að skoða aðeins söguna í þessu málum, nákvæmlega á þessu þingi, þá byrjaði þingið á því að það voru nokkrir stjórnarþingmenn sem skrifuðu greinar í blöðin um hversu rosalega mikilvægt væri að ná þessu frumvarpi í gegn núna. Maður las það svona á milli línanna að bara algerlega óháð því hvert innihald þess væri þá þyrfti að ná því í gegn og þá væri búið að ná einhverjum árangri. Í hverju? Frekar óljóst. Í þessari skilvirkni og ýmsu svoleiðis sem eitthvað á hafa verið gert við á hinum Norðurlöndunum og svoleiðis. Þegar maður reynir hins vegar að greina efni frumvarpsins og spyrja: Bíddu, fyrirgefið, átti þetta ekki að ná skilvirkni, þurfið þið að bæta við fleiri skilyrðum hérna sem er hægt að fara með í kæruleið, sem eykur þá pappírsflæði og alls konar vesen?

Mér líður dálítið eins og staðan sé einhvern veginn þannig að meiri hlutinn sé bara búinn að bíta það í sig, einhvern veginn búinn að semja sín á milli um að þetta frumvarp verði samþykkt svona, eitthvað annað verði samþykkt öðruvísi og þriðja verði samþykkt — það eru þrír flokkar. Mér líður bara þannig. Ég get ímyndað mér að meiri hlutanum líði eins og við séum eitthvað rosalega ósanngjörn og séum einhvern veginn að skálda eitthvað upp um efni frumvarpsins sem er ekki samkvæmt þeirra meirihlutaáliti. En við erum bara að reyna að segja: Sjáið þið umsagnirnar, þær eru ekki fáar og þær eru ekki frá aðilum sem eru ekki marktækir. Og eftir stöndum við bara með þetta reiptog: Við erum búin að skoða þetta og okkur finnst þetta. En hinum megin erum við í stjórnarandstöðunni að segja: Fyrirgefið, en þið eruð ekki búin að svara þessum spurningum. Þið eruð hér með ákveðnar forsendur sem ganga bara ekki upp ef þið lesið í alvörunni hvað stendur hérna.