útlendingar.
Frú forseti. Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum að vanda okkur í útlendingamálum og við þurfum að setjast niður og marka stefnu og semja frumvörp og ákveða hvernig við ætlum að taka á þeim vanda sem blasir við. Við viljum opna faðminn og taka á móti flóttamönnum frá Úkraínu. Viljum við opna faðminn og taka á móti flóttamönnum sem þurfa að flýja heimili sín vegna loftslagsbreytinga, sem er næstum því öruggt að muni gerast? Hvernig ætlum við að taka á málum þegar fólk leitar hingað í neyð? Við þurfum að setjast niður og búa til þjóðarsátt um það því að það er hættulegt fyrir samfélög að hafa útlendingamál í ágreiningi. (BLG: Heyr, heyr.) En þetta frumvarp sem við erum að ræða hér mun ekki renna stoðum undir sátt um útlendingamál í samfélaginu. Þess vegna er þetta svolítið — ekki bara svolítið, þetta er verulega alvarlegt mál og við höfum auðvitað horft á það og hlustað á hvað það er auðvelt að þyrla upp ryki og stefna einum hópi í samfélaginu, sem stendur höllum fæti, á móti öðrum í sömu stöðu. Við höfum horft á það í löndunum í kringum okkur hvaða slæmu afleiðingar slíkar deilur hafa haft í för með sér þegar einn hópur vill setja annan til hliðar, eins og sumir vilja gera með fólk sem hér er og er af erlendum uppruna. Þá er enginn greinarmunur gerður á því hvort fólk kemur hingað í leit að vernd eða kemur hingað af því að þau voru að svara atvinnuauglýsingu. Öllu er ruglað saman og það er líka gert hér af hv. þingmönnum.