153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:38]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Takk kærlega fyrir þetta. Eins og málið blasir við mér þá er það sem er einna mest opinberandi, eins og hv. þingmaður nefndi áðan, þetta með álitið, óháð álit á mannréttindastöðunni í þessu frumvarpi, að það hafi verið sagt nei við því. Það fara bara öll rauð flögg upp hjá mér um að — fyrirgefið þetta, það sem við erum að segja, það sem umsagnaraðilar eru að segja er að það er eitthvað sem má ekki segja upphátt hvað varðar frumvarpið. Ég held að allir hljóti að skilja af hverju, dæmin eru þannig í þessum útlendingamálum, eins og umsagnaraðilar reifa, að það er ekki rétt farið með mál fólks í sérstaklega viðkvæmri stöðu, eins og Rauði krossinn rekur í sinni umsögn, þannig að sporin hræða. Þegar Rauði krossinn bendir á það sem Rauði krossinn kann á og meiri hlutinn segir: Nei, við ætlum ekki að fá óháð álit, við ætlum bara ákveða þetta sjálf, þá er ég bara: Rautt flagg, þetta er ekki í lagi.