153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:40]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Eins og við höfum farið yfir hér síðustu daga, og ég í ræðu minni núna áðan, þá hafa verið gerðar mjög alvarlegar athugasemdir við þetta frumvarp. Landlæknir talar um rétt til heilbrigðisþjónustu, svo dæmi sé tekið. Og auðvitað Rauði krossinn, eins og hv. þingmaður benti á. Það er von mín að hæstv. ráðherrar sem koma að málaflokknum og hv. stjórnarþingmenn setjist niður með fulltrúum stjórnarandstöðunnar til þess að athuga hvaða flötur er á þessu máli. Og það getur auðvitað alveg gerst á meðan 2. umr. er í gangi ef fólk er tilbúið að stíga aðeins eitt skref aftur á bak og segja: Heyrðu, kannski erum við ekki alveg á réttri leið hérna. Eigum við ekki að reyna að finna flötinn á málinu? Við vitum kannski að það verða ekki allir sáttir. En finnum einhverja leið út úr þessum vanda sem við erum sannarlega komin í hér á þinginu með þetta frumvarp. (BLG: Heyr, heyr.)