153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:41]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Það voru mjög áhugaverðar umræður sem fóru fram hér af hálfu þingmanna sem ég tek heils hugar undir. Þetta er náttúrlega bara galið. Hvar var ég áðan? Jú, ég var að hneykslast á því að það væri ekki verið að taka mark á umsagnaraðilum sem vita klárlega miklu meira um þetta en hæstv. dómsmálaráðherra Jón Gunnarsson eða bara ríkisstjórnin í heild sinni. Ég talaði um 8. gr., fór ítarlega í hana. Ég er bara með smá valkvíða, virðulegi forseti, gagnvart því hvaða grein ég eigi að tala um. Ég er að pæla í að taka bara samfellda umfjöllun um 2. gr. frumvarpsins og 6. gr. frumvarpsins en ég ætla að lesa fyrst úr umsögn Amnesty International. Þar segir um 2. gr. frumvarpsins, með leyfi forseta:

„Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að ákvarðanir Útlendingastofnunar um synjun á efnislegri meðferð á grundvelli 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 (útl.) sæti sjálfkrafa kæru til kærunefndar útlendingamála nema umsækjandi óski sérstaklega að svo verði ekki. Þá er gerð sú krafa að greinargerð vegna kæru berist kærunefnd útlendingamála innan 14 daga frá birtingu ákvörðunarinnar.

Gagnaöflun vegna kæru er háð afhendingu gagna frá Útlendingastofnun sem gefur sér að lágmarki 10 virka daga til þess að afhenda skjöl. Það sama á við um gagnaöflun frá öðrum stjórnvöldum og aðilum almennt. Sú staðreynd að umsækjendur geta ekki treyst því að gögn verði afhend þeim með stuttum fyrirvara á meðan mál þeirra sæta sjálfkrafa kæru, mun leiða til þess að umsækjendur um alþjóðlega vernd verða ófærir um að undirbúa viðunandi málsvörn og að mál þeirra sé nægjanlega upplýst í skilningi rannsóknarreglu stjórnsýslulaga þegar ákvörðun er tekin. Tillögð lagabreyting felur í sér áhættu um að þessi málaflokkur verði sá eini sem lýtur málsmeðferð innan stjórnsýslunnar þar sem málsaðilum er ekki tryggður sá kostur að njóta réttar síns til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns í skilningi 13. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Miðað við ofangreint mun ákvæðið leiða til verulegrar skerðingar á réttarvernd umsækjenda um alþjóðlega vernd. Mikilvægt er að aukin skilvirkni komi ekki niður á réttaröryggi umsækjenda. Íslandsdeild Amnesty International leggur því eindregið til að fallið verði frá þeirri breytingu sem 2. gr. frumvarpsins felur í sér. […]

6. gr. frumvarpsins: Heimild til að skerða eða fella niður grunnþjónustu.

Í 6. gr. frumvarpsins er lagt til að 8. mgr. 33. gr. laganna orðist svo að útlendingur sem fengið hafi endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd njóti áfram réttinda samkvæmt greininni þar til hann hafi yfirgefið landið en þó að hámarki í 30 daga frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Að þeim tímafresti loknum falli réttindin niður. Þau réttindi sem fjallað er um í 33. gr. eru grundvallarmannréttindi og snúa að grunnþörfum fyrir fæði, húsnæði og nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu auk þess sem börnum á grunnskólaaldri er tryggður réttur til menntunar. Með því að heimila skerðingu á slíkri grunnþjónustu er hætt við því að alvarleg vandamál skapist og velferð fólks sé stefnt í hættu. Mikilvægt er að tryggja að einstaklingar fái notið mannréttinda sinna að fullu þegar fyrir liggur framkvæmdarhæf ákvörðun í málum þeirra sérstaklega í ljósi þess að slík ákvörðun kemur oft ekki til framkvæmda svo mánuðum skiptir. Sá sem bíður endursendingar nýtur þá hvorki réttar til almennrar félagsþjónustu né hefur hér atvinnurétt nema að ströngum skilyrðum uppfylltum. Tillögð skerðing eða niðurfelling á þjónustu er varðar grunnvelferð fólks felur í sér alvarleg vandamál þar sem fólki er ekki tryggð lágmarksframfærsla né réttur til húsnæðis á nokkurn hátt. Þá verður að leggja áherslu á mikilvægi þess að fólk njóti grunnheilbrigðisþjónustu á meðan það dvelur hér á landi. Þau réttindi sem hér um ræðir eru meðal annars tryggð í samningi Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, sem Ísland er aðili að og hefur fullgilt, auk barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem hefur verið lögfestur á Íslandi. Í greininni segir að ekki sé heimilt að fella niður réttindi alvarlega veikra og fatlaðra einstaklinga með langvarandi stuðningsþarfir. Íslandsdeild hefur gert alvarlegar athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna veikinda eða fötlunar. Svo virðist vera að verulega þröng skilyrði séu sett fyrir því að umsækjendur teljist falla undir að vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá hefur Útlendingastofnun ítrekað vanrækt skyldu sína um að rannsaka hvort einstaklingur teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu og hefur tekið ákvarðanir í málum áður en mikilvæg heilbrigðisgögn hafa borist stofnuninni. Þrátt fyrir umrædda undantekningu á meginreglunni um niðurfellingu þjónustu er líklegt í ljósi fyrri reynslu á mati Útlendingastofnunar að breytingin muni samt sem áður bitna harðast á einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Íslandsdeild Amnesty International leggur eindregið til að fallið verði frá þeirri breytingu sem 6. gr. frumvarpsins felur í sér.“

Virðulegi forseti. Ég er ekki einu sinni byrjuð að fjalla um 6. gr. eða aðrar greinar. Þess vegna óska ég eftir að verða sett aftur á mælendaskrá.