153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:47]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Ég held áfram umfjöllun minni um 8. gr. frumvarpsins. Þar var ég að fjalla um b-liðinn. Til að rifja upp fyrir áheyrendum þá fjallar hún um auknar heimildir til Útlendingastofnunar til að senda fólk — fyrirgefið: vísa fólki þangað sem Útlendingastofnun finnst sanngjarnt og eðlilegt að fólk dveljist. Þetta er óháð því hvort viðkomandi hafi yfir höfuð heimild til að fara til þess ríkis. Því er ekki hægt að framfylgja þessu heldur reiða frumvarpshöfundar sig á það að fólk sé nú bara að koma hingað til að svindla, þetta séu efnahagslegir flóttamenn og þeir muni bara fara. Þeim verði sagt að fara eitthvert og þá fari þau bara, sérstaklega þegar við setjum þau bara á götuna. Hins vegar vitum við sem störfum í þessum málaflokki að þannig virkar þetta ekki.

Ég ætla að halda aðeins áfram að lesa upp úr umsögn Rauða krossins um þessa grein í frumvarpinu. Rauði krossinn sinnti, eins og þekkt er, talsmannaþjónustu við hælisleitendur allt þar til núverandi hæstv. dómsmálaráðherra ákvað að það væri ekki sniðugt fyrirkomulag í febrúar á síðasta ári. Með leyfi forseta:

„Talsmenn Rauða krossins hafa einnig bent á þá þversögn að Útlendingastofnun synji umsækjendum um efnismeðferð í tilvikum þar sem umsækjandinn hefur dvalið í móttökuríki sem er ekki á lista sem stofnunin gefur sjálf út yfir örugg upprunaríki skv. 2. mgr. 29. gr. útl. Einnig virðist Rauða krossinum sem í tillögu frumvarpsins séu gerðar jafnvel minni kröfur til aðstæðna í fyrsta griðlandi sem móttökuríki en gerðar eru þegar metið er hvort umsækjandi geti leitað verndar með því að flytja sig um set innan eigin heimaríkis …“

Ég ætla aðeins að staldra hérna við. Hvað eru þau að tala um? Jú, samkvæmt flóttamannahugtakinu telst einstaklingur flóttamaður frá sínu ríki ef hann er ofsóttur þar á grundvelli ákveðinna þátta og ef hans eigið ríki getur ekki veitt honum vernd gegn þeim ofsóknum og viðkomandi getur ekki verið öruggur einhvers staðar annars staðar í ríkinu. Allt þetta er kannað þegar umsókn um vernd er skoðuð. Hins vegar erum við hér að tala um tilvik þar sem umsóknin yrði ekki einu sinni skoðuð heldur yrði fólki bara vísað eitthvert þangað sem, eins og ég sagði, Útlendingastofnun finnst sanngjarnt og eðlilegt að fólk dveljist. Það sem Rauði krossinn er hér að benda á er það að svo virðist sem að við mat á því hvert senda eigi einstaklinga séu gerðar minni kröfur en þegar umsókn er skoðuð efnislega og það skoðað hvort viðkomandi hafi tök á að flytja sig um innan heimaríkis. Þetta skýtur auðvitað gríðarlega skökku við. Þarna er sem sagt verið að gera minni kröfur til móttökuríkisins, þar sem Útlendingastofnun finnst sanngjarnt og eðlilegt að fólk dveljist, en í nokkrum öðrum málum af nokkru öðru tagi, hvort sem það eru efnismeðferðir eða nokkuð annað, þannig að þetta skýtur aðeins skökku við. Og svo leyfir stofnunin sér að kalla þetta fyrsta griðland. En þetta er náttúrlega ekki fyrsta griðland heldur það sem kallað er öruggt þriðja ríki og þetta eru ekki einu sinni ríki sem eru á lista Útlendingastofnunar sjálfrar yfir örugg þriðju ríki. Ég held aðeins áfram, með leyfi forseta:

„Í athugasemdum við það ákvæði í frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga segir m.a. að við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði í eigin heimaríki sem talið er öruggt samkvæmt ákvæðinu skuli tekið tillit til ýmissa þátta sem ekki séu tæmandi taldir, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á vinnu eða menntun og að við matið skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í framkvæmd hefur einnig verið lögð rík áhersla á að umsækjandi eigi félagslegt bakland á því svæði þar sem honum er ætlað að setjast að. Engin slík sjónarmið eru rakin í frumvarpinu.“

Það er sem sagt verið að heimila Útlendingastofnun að gera hér er að vísa umsókn frá með veikari kröfum til móttökuríkisins en gerðar eru til ríkisins sem viðkomandi er að flýja stríð frá. Þannig að það er kannski öruggara — ókei, já, kannski Sýrland, en það eru ákveðnar kröfur gerðar þar en við getum sent þig til Chile án þess að kanna hvernig aðstæður eru. Það má vel vera að þar séu aðstæður verri fyrir þig en annars staðar innan heimalandsins. Það er bara fínt. Við skulum ekki einu sinni skoða hvernig aðstæður eru í heimalandinu þínu. Það sem kristallast þarna þegar maður skoðar þessa umsögn Rauða krossins er að þessi ákvæði eru fullkomlega óútpæld. Þetta er algerlega óúthugsað. Eina hugsunin þarna er: Getum við ekki sent fólk bara eitthvert annað? Þá hugsa frumvarpshöfundar: (Forseti hringir.) Jú, heyrðu, skellum inn lagaheimild fyrir Útlendingastofnun til að senda fólk bara eitthvert annað, eitthvert sem Útlendingastofnun (Forseti hringir.) finnst að fólk eigi að vera af því að þeim finnst það bara passa án þess að kanna eitt eða neitt.

Mætti ég fá að fara aftur á mælendaskrá?