153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:52]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Ég ætla að halda áfram að ræða umsagnir sem hafa borist um frumvarpið. Ég var að ræða um umsögn Kvenréttindafélags Íslands síðast og ætla að halda áfram á sömu nótum. Þar segir m.a. að þrátt fyrir að barnshafandi konur eigi samkvæmt breytingum á frumvarpinu að njóta áframhaldandi heilbrigðisþjónustu er ekkert tekið fram um önnur réttindi þeirra og séu þær því í jafn mikilli hættu og aðrir að lenda á götunni.

Þetta er mjög alvarlegt sem Kvenréttindafélagið er að benda á hér, að það sé ekki tekið fram að önnur réttindi verði ekki skert hjá þeim barnshafandi konum sem hingað leita. Kvenréttindafélag Íslands krefst þess að frumvarpið verði dregið til baka, eins og önnur félög og mannréttindasamtök hafa einnig krafist. Það væri mjög alvarleg og sorgleg staða ef það kæmi upp að hér á götum Íslands væru ófrískar konur, barnshafandi, á götunni og fengju 8.000 kr. til að framfleyta sér. Það er væntanlega ekki það land sem við viljum búa í, við viljum ekki horfa upp á þannig neyð á götunni á dimmum og köldum vetrarmánuðum á Íslandi. Mannvonskan í kringum það er ótrúleg og mjög ófyrirséðar afleiðingar ef rétt reynist að þessar barnshafandi konur fái engin réttindi nema heilbrigðisþjónustu.

Þroskahjálp sendi einnig inn umsögn og segir þar, með leyfi forseta:

„Samtökin benda þó á að svo virðist sem mjög þröng skilyrði séu sett fyrir því að umsækjendur teljist falla undir að vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu og Útlendingastofnun virðist ekki skrá fötlun eða alvarleg veikindi sem sérstaka breytu við meðferð mála hafi viðkomandi hlotið vernd í öðru ríki. Þá hefur Útlendingastofnun ítrekað vanrækt þá rannsóknarskyldu sem á henni hvílir að ganga úr skugga um hvaða þýðingu fötlun eða alvarleg veikindi hafa í þeim aðstæðum sem viðkomandi er sendur í eftir synjun um vernd á Íslandi.“

Þá segir Þroskahjálp einnig að íslenska ríkið hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og að skýra beri lög í samræmi við þjóðréttarlegar skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist. Af þessu leiðir að Útlendingastofnun er skylt að taka mikið tillit til ákvæða samningsins. Þroskahjálp fordæmir þá meðferð sem beitt var við brottvísun fatlaðs flóttamanns til Grikklands þann 4. nóvember síðastliðinn og bendir á að endurskoða þurfi kerfið frá grunni með aðkomu fagaðila. Þroskahjálp kallaði eftir samráði við lagasetningu til samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þau harma að það hafi ekki fengist.

Samtökin ítreka mikilvægi rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins. Upp hafa komið tilvik þar sem umsækjandi um alþjóðlega vernd býr við „ósýnilega“ fötlun sem kemur ekki í ljós fyrr en eftir að Útlendingastofnun hefur tekið ákvörðun. Þroskahjálp gerir þá kröfu að viðurkenndir fagaðilar með sérþekkingu á málefninu komi að mati á því hvort einstaklingur teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu.