153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:15]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Frú forseti. Já, hér er ræðutími knappur. Ég neyðist til að halda áfram að gera hér skil umsögn Þroskahjálpar. Með leyfi forseta, held ég áfram lestrinum, þar sem frá var horfið:

„Í ljósi þeirra mikilsverðu hagsmuna sem eru í húfi er mikilvægt að tryggt sé að fötluðum umsækjendum sé veitt viðeigandi aðlögun, t.d. með tilliti til framkvæmdar viðtala, stuðnings og þjónustu. Samtökin telja augljóst að þetta ákvæði samningsins hafi ekki verið uppfyllt þegar fatlaður maður var fluttur til Grikklands tveimur vikum áður en synjun Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála yrði tekin fyrir hjá íslenskum dómstólum. Vegna fötlunar þessa einstaklings telja Landssamtökin Þroskahjálp útilokað að mögulegt sé að veita honum viðeigandi aðlögun án þess að hann sé viðstaddur í dómssal og fái nauðsynlegan og viðeigandi stuðning til að taka þátt í málinu, sem varðar óumdeilanlega afar mikilsverða hagsmuni hans.

Í þessu samhengi vísa samtökin sérstaklega til 13. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks sem hefur yfirskriftina Aðgangur að réttinum og hljóðar svo:

„1. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum til jafns við aðra, meðal annars með aðlögun málsmeðferðar og aðlögun með tilliti til aldurs í því skyni að greiða fyrir árangursríkri þátttöku þess, beinni eða óbeinni, þar á meðal sem vitni, í allri málsmeðferð, þ.m.t. á rannsóknarstigi eða öðrum fyrri stigum máls.

2. Í því skyni að tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum skulu aðildarríkin efla viðeigandi þjálfun fyrir þau sem starfa á sviði réttarvörslu, þar á meðal lögreglu og starfsfólk fangelsa.“

Þá krefjast samtökin þess að hlutaðeigandi stjórnvöld tryggi, eins og nokkur kostur er, að umsækjendum um alþjóðlega vernd verði ekki vísað úr landi án þess að rannsakað hafi verið með viðeigandi og vönduðum hætti hvort þeir séu fatlaðir eða kunni að vera fatlaðir í skilningi fjölþjóðlegra mannréttindasamninga og geti því átt rétt til verndar samkvæmt þeim samningum og/eða íslenskum lögum eða til dvalarleyfis af mannúðarástæðum. Að mati samtakanna er það augljós og skýr skylda stjórnvalda samkvæmt rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar sem er algjör grundvallarregla í íslensku stjórnkerfi og réttarríkinu.

Einnig krefjast samtökin þess að í þeim tilvikum sem fötluðum umsækjendum um alþjóðlega vernd er synjað um vernd eða efnismeðferð að þær aðstæður sem viðkomandi verður sendur í verði kannaðar til hlítar og gengið úr skugga um að mannréttindi þau sem eru varin í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, séu uppfyllt þar að fullu.

Þá ber íslenskum stjórnvöldum að sjá til þess að framkvæmd brottvísunar í tilvikum fatlaðs fólks uppfylli kröfur um mannúðlega meðferð, mannvirðingu og mannréttindi fatlaðs fólks.

Landssamtökin Þroskahjálp lýsa miklum vilja og áhuga til samráðs varðandi það mál sem hér er til umsagnar til að tryggja réttindi fatlaðs fólks og vísa í því sambandi til samráðsskyldu stjórnvalda sem er áréttuð sérstaklega í 3. gr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks og er svohljóðandi:

„Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.““

Nú er mér ljóst eina ferðina enn að ég mun ekki ná að klára að gera þessari umsögn skil í þessari ræðu og óska því eftir því að fá að fara aftur á mælendaskrá.