útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég var að tala um 6. gr. í útlendingafrumvarpinu og kom inn á það að ég teldi hana fara gegn réttmætisreglu stjórnsýsluréttar. Réttmætisreglan snýst um það að allar ákvarðanir stjórnvalda skuli byggjast á málefnalegum sjónarmiðum. Mér finnst ekki vera málefnalegur grundvöllur fyrir þessari heimild 6. gr., þ.e. að svipta ákveðinn hóp í íslensku samfélagi, ákveðinn hóp af borgurum, rétti til grunnþjónustu, húsnæðis og heilbrigðisþjónustu.
Réttmætisreglan gildir þegar taka á matskenndar stjórnvaldsákvarðanir — þetta er matskennt — þ.e. stjórnvöldum er falið að meta hvert efni ákvörðunar skuli vera. Það eru takmarkanir á þessu. Í dag er þetta ekki óheft, enda má einungis leggja til grundvallar málefnaleg sjónarmið við ákvarðanatöku og hér er um að ræða stjórnvaldsákvörðun. Ég las upp — mig minnir að það hafi verið 2. gr. núgildandi laga um útlendinga, nr. 80/2016, þar sem segir að þessum lögum verði beitt af Útlendingastofnun, kærunefnd útlendingamála, sýslumönnum, þjóðskrá og öðrum bærum stjórnvöldum. Þetta er ekki tæmandi talning á því hverjir geta tekið ákvarðanir í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd en þetta eru samt mjög rúmar heimildir sem er verið að veita með lögfestingu þessara laga. — 4. gr., þetta var 4. gr. laganna, ekki 2. gr. laganna. En eins og ég segi eru þetta samt mjög rúmar heimildir sem er verið að veita með lögfestingu þessara laga. Mér finnst það rosalega sorglegt af því ekki aðeins gætu þessi ákvæði verið andstæð stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu heldur er þetta líka andstætt grundvallarreglum í stjórnsýslurétti sem stjórnvöldum ber að fara eftir, eins og til að mynda réttmætisreglunni og jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, sem er nota bene lögfest, ég man ekki hvar, mig langar að segja 11. gr. stjórnsýslulaga, ég er samt ekki alveg viss en ég ætla að segja það.
Virðulegi forseti. Ég fékk þumalputta frá hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur. Það þýðir að ég hafi farið með rétt mál. Þetta er vissulega í 11. gr. stjórnsýslulaga. Fyrirgefðu forseti, ég er bara svolítið glöð yfir því að ég muni þetta enn þá. Það er svolítið langt síðan ég tók stjórnsýslurétt, alveg tvö eða þrjú ár síðan.
Matskenndar lagareglur fela í sér matskenndar valdheimildir fyrir stjórnvöld til að taka matskenndar ákvarðanir á sviði þar sem löggjafinn hefur ekki talið fýsilegt eða mögulegt að setja fastmótaðri reglur þar um og löggjafinn felur stjórnvöldum ákveðnar stjórnunarheimildir, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga um útlendinga. Löggjafinn setur lög, sem eru glötuð í þessu tilfelli, og felur ákveðnum stjórnvöldum, sem eru talin upp í 1. mgr. 4. gr. útlendingalaga, að beita þeim lögum og þeim heimildum sem er verið að setja. Það er náttúrlega bara flott. Löggjafinn fær bara að firra sig algerlega ábyrgð á því að setja ömurleg lög sem virka ekki í framkvæmd og eru andstæð meginreglum stjórnsýsluréttar og stjórnarskránni. Og hver á að moka upp skítinn eftir að löggjafinn er búinn að setja einhver gölluð lög sem virka varla í framkvæmd? Ég veit það ekki. Dómstólar? Mun þetta einhvern tímann fara fyrir dómstóla? Ég vona það alla vega því að þá getum við fengið skorið úr þessu í eitt skipti fyrir öll og fengið það bara staðfest að þessar valdheimildir eru ekki samkvæmt stjórnarskrá.
Hvað teljast vera málefnaleg sjónarmið? Ég er náttúrlega búin að leggja í vana minn að reifa dóma og álit umboðsmanns Alþingis og hér er eitt álit frá umboðsmanni Alþingis frá 1989, en þar sótti maður um leyfi til þess að selja bjór á veitingastaðnum sínum og honum var neitað um leyfisveitingu á þeim grundvelli að bjórtegundirnar sem hann vildi flytja inn væru ekki þekktar. Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld hefðu byggt á ómálefnalegum sjónarmiðum þar sem áratugalangt bann við sölu á bjór hefði verið í gildi á Íslandi og því erfitt að segja hvaða bjórtegundir teldust vera þekktar á Íslandi.
Virðulegi forseti. Þetta taldist vera ómálefnalegt sjónarmið. Nú mun ég setja þetta í næstu ræðu af því að ég er að renna út á tíma. Ég mun setja þetta í samhengi við 6. gr. frumvarpsins. — Ég óska þess að verða sett aftur á mælendaskrá.