153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:26]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Ég ætla að reyna að halda áfram með ræðuna mína með sem stystum inngangi, en þar sem maður þarf alltaf að vera að rifja upp hvað maður var að tala um svo það sé nú eitthvert samhengi í máli manns þá neyðist ég til að rifja það upp. Ég er sem sagt að tala um b-lið 8. gr. frumvarpsins sem veitir Útlendingastofnun heimild til þess að vísa fólki þangað sem stofnuninni dettur í hug, eða eins og það er orðað í ákvæðinu: þangað sem stofnuninni finnst eðlilegt og sanngjarnt að fólk dveljist.

Ég var að lesa upp úr umsögn Rauða krossins um þetta ákvæði sem telur þetta með öllu ótækt og ætla aðeins að halda áfram með það sem Rauði krossinn hefur um þetta að segja, með leyfi forseta:

„Í hugtakasafni Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna er hugtakið fyrsta griðland (e. first country of asylum) skilgreint með eftirfarandi hætti:

„A concept …““ — Með leyfi forseta. Má tala ensku? Nei, ég er ekki viss. Ég ætla að reyna að þýða þetta.

(Forseti (LínS): Þingmálið er íslenska.)

Ég held bara að ég verði að fá þýðingu og koma með hana í næstu ræðu. Ég hugsa að umsögnin sé skiljanleg þrátt fyrir það þar sem það er farið í einstök efnisatriði skilgreiningarinnar. Ég held áfram á íslensku, með leyfi forseta:

„Vakin er athygli á vægi hugtaksins „protection““ — sem á íslensku er „vernd“ — „og að skilgreining stofnunarinnar tekur ekki mið af því að umsækjandi hafi tengsl við móttökuríkið eins og frumvarpið virðist byggja í ríkum mæli á. Í hugtakasafni Flóttamannastofnunar er hugtakið „protection“ í framangreindum skilningi einnig að finna og er þar tekið fram að ekki sé um að ræða alþjóðlega vernd þó að tengsl séu þar á milli. Skilgreiningin er svohljóðandi:“ — Svo kemur skilgreiningin á því hugtaki. —

„Í umfjöllun Flóttamannastofnunar frá árinu 2008 um hugtakið fyrsta griðland koma fram ýmis sjónarmið stofnunarinnar hvað það varðar. Umfjöllunin felur í sér umsögn um ákvæði 26. gr. reglugerðar nr. 2005/85/EC sem er samhljóða núverandi 35. gr. tilskipun nr. 2013/32/EU. Er 35. gr. tilskipunarinnar svohljóðandi:“

Því miður er það líka á ensku þannig að ég verð að hoppa yfir þessa skilgreiningu. Ég held áfram með skýringar Rauða krossins, með leyfi forseta:

„Í umfjölluninni bendir stofnunin á að ástæður þess að fólk yfirgefur fyrsta griðland geti verið margvíslegar, þ.m.t. skortur á varanlegum lausnum, takmörkuð geta til að hýsa flóttamenn og vangeta til að veita virka vernd (e. effective protection). Af þeim ástæðum krefjist beiting ákvæðisins vandaðrar og einstaklingsbundinnar skoðunar. Þá segir að beiting reglunnar um fyrsta griðland án þess að gengið sé úr skugga um að móttökuríkið taki á móti umsækjandanum myndi fela í sér brot á ákvæði reglugerðarinnar. Enn fremur segir að sönnunarbyrði hvíli á ríkinu sem hefur umsókn um vernd til meðferðar að ganga úr skugga um [að umsækjandinn hafi aðgang að vernd í móttökuríkinu]. Að þessu sögðu kveðst Flóttamannastofnun hafa ríkar áhyggjur af b-lið ákvæðisins. Stofnunin bendir á að hugtakið [fullnægjandi vernd] í b-lið ákvæðisins sé ekki skilgreint. Þar sé aðeins vísað til meginreglunnar um [bann við endursendingu þangað sem líf fólks og/eða frelsi er í hættu] og bendir stofnunin, sem fyrr segir, á að samkvæmt flóttamannasamningnum eigi flóttamenn að njóta ríkari réttinda en felast í þeirri meginreglu. Að mati Flóttamannastofnunarinnar verði sú vernd sem sé til staðar í þriðja ríkinu að vera virk (e. effective) og aðgengileg (e. available). Flóttamannastofnun lagði því til að hugtakinu yrði breytt úr [fullnægjandi vernd] í [virk vernd] með sama hætti og það hugtak birtist í flóttamannasamningnum. Þá segir að geta móttökuríkisins til að veita virka vernd í raun skuli tekin til skoðunar sérstaklega ef móttökuríkið er þegar með mikinn fjölda flóttamanna.

Að lokum listar Flóttamannastofnun upp atriði sem stofnunin telur nauðsynleg til að ganga úr skugga um við mat á hvort einstaklingur nýtur virkrar verndar í móttökuríki.“

Tilvitnun lýkur í bili. Ég geri hér hlé.

Ég mun hér á eftir líka fjalla um umsögn Flóttamannastofnunar sjálfrar við ákvæðið. Hún er sem betur fer til í íslenskri þýðingu þannig að ég mun ekki þurfa að þýða úr ensku hérna í beinni uppi í pontu, en þess má geta að íslensk þýðing á umsögn Flóttamannastofnunar var ekki komin til allsherjar- og menntamálanefndar fyrr eftir að nefndin var búin að afgreiða málið úr nefnd og rita meirihlutaálit í nefndinni. Svo mikið skeytti meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar um umsögn Flóttamannastofnunar að það þótti ekki einu sinni skipta máli hvort hún væri okkur fullkomlega skiljanleg eða ekki. — Ég óska eftir að fá að fara aftur á mælendaskrá.