útlendingar.
Frú forseti. Í síðustu ræðu minni hef ég verið að gera grein fyrir umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar og hafa síðustu ræður ekki dugað þar sem ræðutíminn er stuttur. En mig grunar nú að mér takist að klára að fara yfir þessa umsögn í þessari ræðu. Með leyfi forseta þá held ég áfram þar sem frá var horfið:
„Þá harma samtökin að ríkisstjórnin skuli ekki hafa orðið við ákalli um samráð við gerð frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga, sem eftirfarandi samtök og stofnanir sendu henni 7. september sl.:
Geðhjálp, Hjálparstarf kirkjunnar, Íslandsdeild Amnesty International, Kvenréttindafélag Íslands, Landssamtökin Þroskahjálp, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Rauði krossinn á Íslandi, Samtökin ´78, Siðmennt, Solaris, hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, UNICEF á Íslandi, UN Women á Íslandi, þjóðkirkjan, Öryrkjabandalag Íslands, ÖBÍ.
Landssamtökin Þroskahjálp óska eindregið eftir að fá að koma á fund allsherjar- og menntamálanefndar til að gera nefndinni betur grein fyrir áherslum sínum og sjónarmiðum varðandi frumvarpið sem hér er til umsagnar.“
Undir þetta rita Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, og Anna Lára Steindal, verkefnastjóri í málefnum fatlaðs fólks af erlendum uppruna.
Við að lesa þessa umsögn þá blasir við að hér er á ferðinni fólk sem brennur fyrir þeim málum sem fjallað er um. Það brennur fyrir því að þessum málum sem þau eru að sinna verði fundinn sá farvegur sem nauðsynlegur er, enda ber umsögnin þess merki að þau sjá afleiðingarnar af því að gera þetta ekki rétt. Þau eru að benda á lausnirnar. Þau eru að benda á lausnirnar sem skila þessari skilvirkni sem hér er ítrekað talað um. En er hlustað á þessa umsögn? Er hlustað á umsagnirnar frá öllum þessum hjálparsamtökum sem vísað er til í þessari umsögn þegar þetta er unnið? Nei, einu viðbrögðin sem ég hef orðið var við við þessu — eða ég gat ekki betur séð þegar ég kannaði netmiðla nýlega en að verið væri að leitast eftir því að kaupa sérstakan bíl þannig að það væri hægt að flytja fatlað fólk með auðveldari hætti á flugvöllinn. Ég get ekki séð betur en að þarna sé verið að leysa kolvitlaust vandamál. Þarna er slík lítilsvirðing í gangi fyrir viðfangsefninu að manni misbýður. Mér er hreinlega misboðið að lesa umsögn með afar ítarlegum vísunum í samninga, í skuldbindingar, í lög og í raunverulegar afleiðingar og raunveruleg vandamál sem fólkið, sem þarf á endanum að takast á við afleiðingarnar af því sem verða verði þetta frumvarp samþykkt, leggur fram og það er engu skeytt um það. Það er engu skeytt um hvað það hefur í för með sér. Þess í stað kemur þessi vélræna nálgun á skilvirkni, að það þurfi nú að vera auðveldara að koma fatlaða fólkinu úr landi. Og miðað við það sem kemur fram í þessari umsögn get ég ekki séð að það sé sú skilvirkni sem mér hugnast heldur akkúrat skilvirkni sem kostar gríðarlegar fórnir í mannúð og það er ekki ásættanlegt.