153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:37]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Ég ætla að halda áfram að fara yfir samantekt umsagna sem hafa borist vegna þessa máls. Ég var komin í umsögnina frá Þroskahjálp og átti þar eftir að nefna að samtökin segja að það séu vonbrigði að frumvarpið feli ekki í sér ákvæði um hvernig betur verði staðið að meðferð mála fatlaðra umsækjenda um alþjóðlega vernd til að mæta þeim skyldum sem á stjórnvöldum hvíla. Eins og hv. þm. Indriði Ingi Stefánsson sagði áðan þá er svolítið verið að byrja á öfugum enda þegar að þessu kemur, t.d. með því að reyna að finna út hvernig best sé að fá einhvers konar sérstaka bifreið eða eitthvað til að flytja fatlaða einstaklinga, sem á að senda úr landi, á milli staða.

Næst vil ég nefna hér umsögn frá Læknafélaginu. Með leyfi forseta:

„[Læknafélag Íslands áréttar] að kalli útgáfa heilbrigðisvottorðs á heilbrigðisskoðun eða læknisrannsókn á grundvelli nýrrar 3. mgr. 17. gr. laganna, verði frumvarpið að lögum, og viðkomandi samþykkir ekki slíka rannsókn, þá verður hún aldrei framkvæmd að mati LÍ nema að undangengnum dómsúrskurði.“

Læknafélagið áréttar einnig að synjun um aðgengi að heilbrigðisþjónustu að 30 dögum liðnum frá birtingu endanlegrar ákvörðunarinnar stangist á við grundvallarmannréttindi, líkt og fram kemur í fjölmörgum mannréttindasamningum sem Ísland hefur staðfest. Það er gegnumgangandi þegar umsagnir eru skoðaðar að það er mikið ósætti varðandi ýmis atriði og ýmsar lagagreinar hjá mjög fjölbreyttum hópi umsagnaraðila sem bera hag alls konar einstaklinga fyrir brjósti; barna, kvenna, fólks sem er veikt, fatlaðra. Það eru ótrúlegar athugasemdir sem ekki er verið að bregðast við.

Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkurborgar sendi einnig inn umsögn og þar segir, með leyfi forseta, varðandi ákvarðanir um að synjun sæti sjálfkrafa kæru, þ.e. skv. 2. gr., að þessi breyting mun stytta þann tíma sem umsækjendur hafa til að kynna sér forsendur niðurstöðu ákvörðunar Útlendingastofnunar, afla sér nýrra gagna og undirbúa gögn vegna kæru, undirbúa greinargerðir vegna kæru. Það getur oft tekið tíma að afla gagna erlendis frá og fá leiðbeiningar lögfræðings til að undirbúa kæru. Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkur leggst gegn þessari breytingu.

Varðandi þjónustuskerðingu eftir 30 daga. Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkurborgar er mótfallin því að öll þjónusta falli niður. Einnig fellur öll þjónusta niður um leið ef umsækjandi er frá EES-ríki eða frá öruggu upprunaríki að mati Útlendingastofnunar. Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkur leggur áherslu á að það þurfi að skoða aðstæður hvers fyrir sig vel með tilliti til aðstæðna í upprunaríki og því sé ekki hægt að alhæfa með þessum hætti að umsókn sé bersýnilega tilhæfulaus. Þau benda líka á að skv. 11. gr. stjórnsýslulaga sé óheimilt að mismuna aðilum við úrlausn máls á grundvelli þjóðernis.