útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég er að gera grein fyrir umsögn Rauða krossins á Íslandi varðandi b-lið 8. gr. frumvarpsins sem fjallar um nýja heimild til handa Útlendingastofnun til þess að vísa fólki þangað sem stofnuninni finnst sanngjarnt og eðlilegt að umsækjandi dvelji og sæki um vernd. Það sem er áhugavert í þessari umsögn Rauða krossins, sem ég ætlaði nú að lesa beint upp úr hér áðan, en vandinn er sá að tilvitnanir í m.a. hugtakasafn Flóttamannastofnunar og síðan Evróputilskipanir sem vísað er til í greinargerðinni og þær Evróputilskipanir sem gilda um þetta, eru á ensku þannig að ég get ekki lesið beint upp úr því. En svona til þess að kjarna það sem kemur þar fram þá er í fyrsta lagi með þessu hugtaki, því sem kallað er fyrsta griðland í frumvarpinu, ekkert verið að tala um fyrsta griðland, þar er verið að tala um svokallað þriðja öruggt ríki.
Það sem Flóttamannastofnun hefur bent á og Rauði krossinn ítrekar hérna er annars vegar að Flóttamannastofnun hefur gert athugasemdir við þá Evróputilskipun sem ákvæðið er byggt á og segir hana ekki fullnægjandi til að tryggja vernd flóttafólks á grundvelli flóttamannasamningsins. Í ofanálag þá er það ákvæði sem er lagt til í þessu frumvarpi sem við erum að ræða hér ekki í samræmi við Evróputilskipunina. Þannig að við erum með flóttamannasamninginn, hann segir eitthvað. Evróputilskipunin uppfyllir ekki öll þau skilyrði og ákvæðið sem við ætlum að setja hérna inn uppfyllir ekki einu sinni skilyrði Evróputilskipunarinnar sem uppfyllir ekki flóttamannasamninginn. Það er það sem við erum að tala um hérna. Hvernig? Jú, Flóttamannastofnun hefur lagt áherslu á að til þess að einstaklingur teljist geta notið verndar sem flóttamaður í móttökuríki, í því ríki sem einhverjum dettur í hug að senda viðkomandi til samkvæmt sínum lagaákvæðum, þá er ekki nóg að treysta á grundvallarreglu þjóðaréttar um að fólk sé ekki sent þangað þar sem líf þess eða frelsi er í hættu heldur eigi flóttafólk rétt á frekari vernd en það. Þannig er Evróputilskipunin ekki í samræmi við flóttamannasamninginn. Í ofanálag þá gerir þessi Evróputilskipun kröfu um að búið sé að ganga úr skugga um það að viðkomandi einstaklingur fái aðgengi að því ríki sem á að vísa honum til. Það er ekki gert í lagaákvæðinu sem við erum að tala um hér. Lagaákvæðið sem við ætlum okkur að lögfesta, sem meiri hlutinn hérna er sannfærður um að sé bara frábær hugmynd — það má sem sagt vísa umsókn frá og vísa viðkomandi bara eitthvert sem Útlendingastofnun dettur í hug — hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Umsækjandi hafi slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.“
Þetta hljómar eins og það sé gerð krafa um að viðkomandi móttökuríki sé aðili að flóttamannasamningnum, en í greinargerð með frumvarpinu segir orðrétt, með leyfi forseta:
„Ekki er gerð krafa um að viðkomandi ríki sé aðili að flóttamannasamningnum en nauðsynlegt er að þau réttindi sem mælt er fyrir um í honum séu virt.“
— Kaldhæðnislegt þar sem tilskipunin, sem sagt er að þetta byggist á, er ekki talin í samræmi við flóttamannasamninginn að þessu leyti og ákvæðið gerir enga kröfu þar um í rauninni. Þannig að svo virðist í fyrsta lagi að ekki sé búið að hugsa þetta ákvæði til enda, líkt og ég sagði.
Það er nú margt sem einkennir þetta frumvarp þar sem það virðist samið af einhvers konar heift gagnvart þeim hræðilegu einstaklingum sem hafa álfast hingað inn og svindlað á kerfinu og raunar má, eins og ég hef oft sagt, lesa í hverju einasta ákvæði í þessu frumvarpi mál einstaklinga sem Útlendingastofnun hefur tapað, ýmist fyrir kærunefnd útlendingamála eða fyrir dómstólum. En í stað þess að hætta hinni ólögmætu framkvæmd þá fyrirskipar dómsmálaráðherra Útlendingastofnun ekki að hætta ólögmætri framkvæmd. Nei, hann ákveður bara að breyta lögunum til að lögfesta hina ólögmætu framkvæmd. — Ég óska eftir því að fara aftur á mælendaskrá.