útlendingar.
Virðulegi forseti. Fyrst ég er hér kominn aftur í hlutverk þingmanns á Alþingi eftir að hafa verið hérna í þarsíðustu viku en ekki í síðustu viku, þá þykir mér ekki úr vegi að ítreka þær spurningar sem ég lagði fram í þarsíðustu viku til stjórnarþingmanna en hef ekki enn fengið nein viðbrögð eða svör við, þ.e. í hverju telja þau þessa skilvirkni sem þessu frumvarpi er ætlað að tryggja felast og hvernig er hægt að ná henni fram? Og ekki síður: Hvað munu þessar breytingar innifela sem búið er að boða að verði gerðar á frumvarpinu? Munu þær innifela einhver viðbrögð við umsögnunum sem við höfum verið að fara yfir, við umsögnum sem eru afar málefnalegar, lausnamiðaðar og gagnlegar, að því er virðist, en eru að engu hafðar? Á meðan ég veit ekki í hverju þær felast og hef ekki fengið svör við þessu þá ætla ég að halda áfram að gera þessum umsögnum skil sem ekki hefur verið tekið mark á að því er virðist. Með leyfi forseta langar mig að lesa hérna upp úr umsögn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands:
„Mannréttindastofnun Háskóla Íslands (MHÍ) hefur borist til umsagnar frumvarp dómsmálaráðherra til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd). Umsögn MHÍ er eftirfarandi:
Almennt MHÍ gerir tvennskonar almennar athugasemdir við framsetningu frumvarpsins auk þess sem gerðar eru athugasemdir við 2. gr. frumvarpsins.
Í fyrsta lagi kemur fram í kafla 4 í almennum athugasemdum með frumvarpinu: „Frumvarpið gefur ekki tilefni til að skoða sérstaklega samræmi við stjórnarskrá.“
Hvorki virðist vísað til ákvæða stjórnarskrár né mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) í athugasemdunum. Verður að telja þetta afar óheppilegt. Efni frumvarpsins varðar með augljósum hætti mannréttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Til dæmis: brottfall þjónustu (6. gr.) varðar 1. mgr. 76. gr. stjskr. og 65. gr. stjskr., breyttar reglur um endursendingar varða 68. gr. stjskr. og 3. gr. MSE, sbr. ítarlega dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins, sérákvæði um börn varða 3. mgr. 76. gr. stjskr., framkvæmd ákvarðana varða 71. stjskr. og 8. gr. MSE og eftir atvikum 68. gr. stjskr. og 3. gr. MSE og ýmis útfærsluatriði á málsmeðferð kunna að varða 70. gr. stjskr. og 6. og 13. gr. MSE hvað varðar rétt til aðgangs að dómstólum, réttláta málsmeðferð og rétt til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns. Óhjákvæmilegt er að löggjafinn taki skýra afstöðu, að undangengnu efnislegu mati, til þess hvort skilyrðum stjórnarskrárákvæða sé fullnægt.
Í þessu samhengi verður að vísa sértaklega til nýfallins dóms Hæstaréttar 26. okt. 2022 í máli nr. 20/2022. Þar gagnrýnir Hæstiréttur að í frumvarpi til breytinga á lögum um lax- og silungsveiði sé, líkt og í frumvarpi því sem hér er til umsagnar, tekið fram að ekki hafi þótt tilefni til að skoða sérstaklega samræmi við stjórnarskrá. Um þetta segir Hæstiréttur:
„Við undirbúning að setningu laga nr. 50/2015 virðist því ekki hafa verið litið til þýðingar 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar og 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu að þessu leyti þótt ríkt tilefni væri til …““
Ég sé það að mér nægir ekki þessi ræðutími til að gera þessari umsögn skil og óska því eftir að fá að fara aftur á mælendaskrá.