153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[20:11]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Frú forseti. Ég var að tala um það að svipta ákveðinn hóp vernd, þ.e. um 6. gr. frumvarpsins nánar tiltekið. Ég er búin að fara mjög ítarlega í þessa 6. gr. því að ég átta mig ekki á því hvers vegna ríkisstjórnin myndi leggja fram svona tillögu sem vegur aldeilis að réttindum fólks sem er í rosalega bágri stöðu til að byrja með. Ég er bara að reyna að setja þetta í samhengi við eitthvað annað til að taka dæmi. Það sem ég er að reyna að koma frá mér er að það má kannski brjóta á mannréttindum flóttafólks. Er það kannski málið? Er það viðhorfið gagnvart flóttafólki að það geti verið einhvers konar tilraunadýr, athuga hvað þau geta komist langt með það að brjóta á mannréttindum fólks? Því að þetta myndi aldrei gerast ef það væri um íslenska ríkisborgara að ræða. Ég skal veðja að svo er ekki.

En þrátt fyrir ábendingar og áhyggjur sem hefur verið komið á framfæri, ekki bara af hálfu þingmanna heldur líka af hálfu sérfræðinga, þá haggast ríkisstjórnin ekki þegar kemur að þessu ákvæði. Hún ætlar bara að lögfesta þetta frumvarp. Mér finnst það eiginlega magnað af því að viðhorfið sem ég er að fá frá ríkisstjórninni þegar kemur að setningu þessa lagaákvæðis er bara: Hverjum er ekki drullusama um flóttafólk og hælisleitendur? Af hverju megum við ekki bara brjóta á réttindum þeirra? Af hverju megum við ekki vera eins leiðinleg og við getum mögulega verið og brjóta á réttindum þeirra? Það er eins og ríkisstjórnin líti þannig á að þetta fólk eigi ekki skilið mannréttindi og virðingu. Þetta er bara viðhorfið sem ég er að fá frá stjórnvöldum.

Með setningu þessara laga getur opnast gluggi fyrir stjórnvöld til að misbeita valdi sínu, þ.e. þau eru að velja leið til að leysa úr máli. En misbeiting valds við val á leiðum til úrlausnar máls hefur aðallega þýðingu við ákvörðun stjórnvalda um efni matskenndra stjórnvaldsákvarðana. Þetta er kannski ekki beint matskennd stjórnvaldsákvörðun, það að ákveða að svipta einhvern grunnþjónustu, en hún er vissulega ekki málefnaleg heldur. Hún er ekki tekin á grundvelli málefnalegra sjónarmiða og þar með ekki í samræmi við réttmætisregluna. Það sem leiðir af þessari reglu er að það er óheimilt að byggja ákvörðun á meðferð máls á tilteknum sjónarmiðum en það getur haft áhrif á það hvert efni ákvörðunar í málinu verður. Þannig má segja að regla eins og réttmætisreglan fáist við ómálefnaleg sjónarmið, sem er náttúrlega bara bagalegt og á ekki að standast lög. Ég er náttúrlega búin að vera eins og biluð plata hérna uppi í pontu Alþingis, að tala um málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttar og meginregluna og hina og þessa meginreglu. En sannleikurinn er sá að ég mun halda áfram að gera það þangað til einhver hlustar, þangað til þetta verður tekið aftur inn í nefnd og rætt efnislega, öll þessi atriði sem við erum búin að koma inn á hér í dag og í gær og síðustu daga. Það er tilefni til að fjalla efnislega um þetta, annars værum við ekki að eyða svona miklu púðri í að lýsa yfir áhyggjum þegar kemur að þessu, virðulegi forseti. Þetta er gjörsamlega galið. Mér finnst bara fráleitt að eitthvað svona fái að standa í lögum.

Ef það kemur til atkvæðagreiðslu í 3. umr. varðandi þetta mál og þetta lagaákvæði verður ekki tekið út þá vona ég svo innilega að meiri hlutinn geri sér nákvæmlega grein fyrir því hvað er verið að samþykkja hér. Það er verið að samþykkja lög sem ýta beinlínis undir mismunun, lög sem eru bara vond, lög sem eru birtingarmynd mannvonsku. Þetta er gjörsamlega galið. Lög sem eru ekki í samræmi við jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar og heldur ekki jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, 65. gr. Þannig að það eru tvenn lög sem setning þessa lagaákvæðis myndi fara í bága við; það eru 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrárinnar, sem er auðvitað bara grafalvarlegt út af fyrir sig. En hverjum er ekki drull, ha, forseti? Þetta eru náttúrlega bara hælisleitendur, er það ekki?

Já, svona hljómar ríkisstjórnin. Þau neita, gjörsamlega harðneita að taka til greina okkar ábendingar og áhyggjur okkar, af því að þær eru réttmætar. Þessar áhyggjur eru réttmætar. Orðin okkar og ræðurnar okkar sem hafa komið fram í málflutningi okkar hér upp í pontu — þetta er ekkert gert til að vera með vesen, til að taka þátt í málþófi eða hvað sem fólk vill kalla þetta, þetta eru raunverulegar og réttmætar áhyggjur. — Virðulegi forseti. Ég sé að ég er að renna út á tíma og því vil ég biðja um að komast aftur á mælendaskrá.