153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[20:15]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Á sama tíma og ég fagna umhyggju forseta að veita okkur hérna aukinn ræðutíma og lengja þingfund til að við getum örugglega rætt til hlítar þetta gríðarlega mikilvæga málefni sem hér er til umfjöllunar, þá lýsi ég furðu yfir því að sömu aðilar og greiða atkvæði með slíkri ráðstöfun hafi ekki áhuga á að taka þátt í þeirri umræðu. Á sama tíma langar mig að benda forseta á að hér áðan var annar forseti í stólnum og við leituðumst eftir því að kannað yrði hvort hæstv. ráðherra myndi sjá sér fært að taka þátt í umræðunni. Ég vil kanna hvort slíkri bón hafi verið svarað.