153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[20:16]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Af því að ég er nú aðeins eldri í starfi en hv. þm. Indriði Ingi Stefánsson þá kemur mér nú ekkert á óvart að stjórnarliðar séu fjarverandi í salnum þrátt fyrir að hafa stutt hér heimild til lengri þingfundar til að ræða útlendingafrumvarpið. En mér finnst óttalega aulalegt að það eina sem við sjáum af ráðherrunum, sem við erum alltaf að biðja um að mæti hér, sé bara undir iljarnar þegar þeir hlaupa út eftir að hafa ýtt á græna takkann við lengdum þingfundi. Mig langar þess vegna að gera eins og hv. þingmaður og spyrja forseta hvort einhver tíðindi hafi borist frá ráðherrunum og þá sérstaklega félags- og vinnumarkaðsráðherra, sem við báðum um í 1. umr., sem við báðum um 9. desember, þegar í ljós kom að hann hafði sent ráðuneyti sitt á fund nefndarinnar til að fjalla um þann hluta sem ráðuneytið taldi eiga heima hjá þeim ráðherra en ekki dómsmálaráðherra. Og síðan auðvitað mennta- og barnamálaráðherra, sem hlýtur að vilja svara spurningunni (Forseti hringir.) sem hann vék sér undan að svara þegar hv. þm. Lenya Rún Taha Karim spurði hann í óundirbúnum fyrirspurnum, hann hlýtur að vilja segja okkur hvað honum finnist um þau brot á réttindum barna sem hér stendur til að lögfesta.