153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[20:18]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég ætlaði nú að taka undir beiðni hv. þingmanna sem hér komu upp á undan mér, en hæstv. ráðherrar eru víst í útlöndum og komast ekki í umræðuna, því miður. Því spyr ég: Hvar hafa þeir verið á fyrri stigum málsins, á fyrri stigum umræðunnar? Viðhorfið sem ég er að fá frá ríkisstjórninni er bara að þeir vilja loka eyrum sínum fyrir þeim ábendingum og áhyggjum sem hér er komið á framfæri. Þeir geta síðan sagt seinna: Já, Píratar tóku þingið í gíslingu og það var bara enginn áhugi á að hlusta á ræður þeirra þingmanna sem tóku svona oft til máls og því ætlum við bara að firra okkur ábyrgð.

Þetta virkar víst ekki svona. Mig langar bara að hvetja þá ráðherra sem eru staddir hérlendis, og hafa verið talsmenn þess að samþykkja þetta frumvarp og láta það fara í þrjár umræður í gegnum þingið, til þess að koma hingað og taka efnislega þátt í umræðunni. Þá meina ég hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Af hverju ekki líka hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra? Hún hefur líka lagt þetta frumvarp fram sjálf. Mig langar bara að beina nokkrum spurningum að þeim, virðulegi forseti. Við erum ekki að biðja um of mikið hérna.