153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[20:20]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Já, ég tek undir með hv. þm. Lenyu Rún Taha Karim. Í fjarveru þeirra ráðherra sem hafa þó greinilega eðlileg forföll þar sem þeir eru erlendis hlýtur einhver annar hæstv. ráðherra að geta hlaupið í skarðið og tekið þátt í umræðunni. Til þess höfum við meira en nógan tíma. Kannski er það tilfellið að hæstv. ráðherra þyrsti svo að taka þátt í umræðunni að það sé verið að reyna að tefja hana þannig að þeir fái að taka þátt þegar þeir koma til baka að utan. Ef það er tilfellið þá verðum við bara að halda áfram. En ég ítreka að ég er að velta fyrir mér hvar aðrir hv. þingmenn séu miðað við 65. gr. laga um þingsköp, um að þingmönnum sé skylt að sitja þingfundi.