útlendingar.
Forseti. Ég ætla að halda áfram að reifa samantektir úr umsögnum sem hafa borist um þetta frumvarp til laga. Mig langar samt aðeins að taka upp þráðinn frá fyrri ræðu minni um umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands. Mig langar aðeins að tala um hvernig þjónustan fellur niður eftir 30 daga og gagnrýni Mannréttindaskrifstofu Íslands á þá grein. Þau segja sem svo:
„Þau réttindi sem hér um ræðir […] eru grundvallarmannréttindi, svo sem réttur til heilsu og mannsæmandi lífs. Réttindi þessi eru tryggð í samningi Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, sem Ísland er aðili að og hefur fullgilt. Íslensk stjórnvöld hafa vissum skyldum að gegna við fólk sem statt er hér á landi og verða að gæta þess að þau fari ekki gegn þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem þau hafa undirgengist. […] Verður að telja óásættanlegt að svipta fólk þjónustu, skilja það eftir heimilislaust, án framfærslu og viðunandi heilbrigðisþjónustu. Býður það upp á mansal, ofbeldi og aðra hagnýtingu á aðstæðum viðkomandi.“
Mig langar aðeins að ræða þá gagnrýni sem komið hefur fram í mörgum umsögnum á þessa þjónustuskerðingu. Það er ekkert eitthvað léttvægt eða eitthvað sem á bara að horfa fram hjá að við getum verið með fólk hér á Íslandi í enn viðkvæmari stöðu en þegar það kemur hingað. Við erum með þessu að búa þannig að fólki að það er í miklu meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi, verða fyrir mansali, að óprúttnir aðilar nýti sér neyð þess. Og við ætlum bara að segja: Já, þetta er góð hugmynd vegna þess að þá fer fólk örugglega eitthvert annað. — Það er bara ekkert svona einfalt. Fólk í neyð sem sér ekki hvar það á að búa, er ekki með vernd og er ekki öruggt í sínu heimalandi eða annars staðar, það er ekkert svo einfalt að það fari bara aftur út af því að við ætlum að svelta það eða skerða allt sem er manneskjulegt við það að vera í samfélagi. Við ætlum að taka það af þeim, koma fram við þau eins og — við myndum ekki einu sinni koma svona fram við dýr. Af hverju myndum við koma svona fram við fólk á flótta? Mér finnst það svo merkilegt að við erum að tala um álit fagaðila, álit fólks sem veit og hefur reynslu af því hvernig er best að gera þetta. Er það faglega rétt að gera þetta? Er þetta eitthvað sem mun hjálpa þessum einstaklingum eða samfélaginu í heild sinni eða mun þetta skapa meiri neyð? Mun þetta t.d. skapa meiri afskipti lögreglu? Mun þetta kalla á meira ofbeldi? Verðum við með barnshafandi konur á götunni? Ætlum við bara að taka sénsinn og segja: Kannski ekki? Það er bara ekki nógu gott. Það er svo langt frá því. Þetta eru einfaldlega mannréttindabrot.