153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[20:54]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Ég má til með að fylgja því eftir sem hv. þm. Eva Sjöfn Helgadóttir kom inn á áðan, þ.e. ákvæði um fjölskyldusameiningu, vegna þess að mér finnst það vera sennilega eitt andstyggilegsta ákvæðið í þessu frumvarpi. Hvað snýst þetta um? Þetta snýst um örfáa einstaklinga sem á að standa í vegi fyrir að geti sameinast maka sínum og að því er virðist bara vegna þess að íslensk stjórnvöld fara í einhverja fýlu vegna þess að þeim líður eins og fólk hafi sagt þeim ósatt. Við erum hérna að tala um ákvæði sem nær til svokallaðra kvótaflóttamanna. Það er sem sagt fólk sem íslenska ríkið býður sérstaklega að koma til landsins. Þá fer einhver embættismaður á vegum Íslands í flóttamannabúðir erlendis, velur þar fólk út frá ákveðnum, fyrir fram tilgreindum forsendum. Íslenska ríkið hefur einbeitt sér að tveimur hópum, annars vegar einstæðum mæðrum, oftast ekkjum, þar sem eiginmennirnir hafa fallið í árás pólitískra andstæðinga t.d. í ríkjum þar sem það bara er alsiða í stjórnmálunum. Það er annar hópurinn, ekkjurnar. Hinn hópurinn er síðan hinsegin fólk, fólk sem vegna kynhneigðar á á hættu ofsóknir, ofbeldi, og jafnvel morð. Við skulum ekki gleyma því, forseti, að í 41 landi er enn þá refsivert að vera hinsegin. Þar eru stjórnvöld bara bókstaflega með — ja, ekki bókstaflega skotleyfi en það er bara hluti af lagabókstaf landsins að ofsækja hinsegin fólk.

Hvaða fjölskyldusameining er það þá sem á að standa í vegi fyrir? Jú, það er t.d. ef ekkjan kemst að því eftir að hún er komin til Íslands í öryggi með börnin sín að hún er ekki ekkja. Maðurinn sem hún hélt að hefði verið ráðinn af dögum var svo heppinn að hann var bara í gíslingu í sex ár, pyndaður, milli lífs og dauða allan tímann, en svo slapp hann einhvern veginn. Hann fer náttúrlega að leita uppi fjölskylduna, kemst að því að fjölskyldan er komin í skjól á Íslandi og vill sameinast henni. Þá segir íslenska ríkið: Nei, sjáðu til, kona góð, þú sagðir okkur að þú hafir verið ekkja. Hér ertu bara búin að segja okkur ósatt af því að það er einhver maður hérna. Það er fjölskyldusameiningin sem á að standa í vegi fyrir.

Hinn hópurinn, hinsegin fólkið, er fólk sem er vant því að treysta ekki stjórnvöldum. Það getur ekki sagt hverjum sem er að það sé hinsegin. Það fer síðan á flótta, fer í þetta inntökuviðtal hjá íslenska embættismanninum og segist vera einhleypt, af því að ef það segir: Nei, ég er í sambandi og hérna er maki minn, bara heima, þá er þessi maki kannski allt í einu kominn í hættu. Þú sem ofsóttur hinsegin einstaklingur ert ekkert að blaðra í hvern sem er að þú eigir hinsegin maka þarna í þessu umhverfi þar sem hinseginleikinn getur verið dauðasök. Nei, þú þiggur bara skjólið sem Ísland býður þér, flytur hingað, festir rætur, kynnist fólki, byggir upp traust á kerfinu og loksins þegar þú ert nógu örugg til að líða vel með að deila þessum upplýsingum þá segirðu einhverjum: Heyrðu, hér á ég reyndar maka, búin að eiga árum saman en þurfti að fara leynt með það. Nú treysti ég mér til að segja að það. Get ég fengið hann til mín? Þá hugsar íslenska kerfið: Nei heyrðu, hér er einhver sem sagði mér ósatt. Þetta er fjölskyldusameining sem er á fölskum forsendum. Við ætlum bara að halda þessum úti.

Hvernig getur embættismannakerfið verið jafn hjartalaust og sagt við ekkjuna sem endurheimtir manninn úr helju eða við hinsegin manneskjuna sem þorir loksins að benda á makann og segja: Þetta er manneskjan sem ég elska — hvernig fær fólk af sér að segja: Nei, nei, þú sagðist ekki eiga neinn maka. Bara út með það lið. Eins og hv. þm. Eva Sjöfn Helgadóttir sagði: Þetta er örlítill hópur. Þetta eru örfáir einstaklingar sem þetta gæti mögulega snert, breytir engu fyrir íslenska ríkið að hleypa þessu fólki inn. Breytir öllu fyrir makana sem elska þau. — Ógeðslegt ákvæði.