útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég er búin að vera lesa nokkrum sinnum úr umsögnum aðila sem hafa sent inn umsögn varðandi þetta frumvarp. Nú ætla ég að lesa úr umsögn grasrótarhreyfingar sem er samansett af ungum einstaklingum. Ég held að það sé rosalega mikilvægt og ferskt að fá þeirra sýn á þetta því að eins og ég segi, mín kynslóð og kynslóðirnar á eftir minni kynslóð munu þurfa að moka upp skítinn eftir núverandi ráðamenn. Og ef þetta agalega frumvarp verður lögfest, sem er búið að margvara við, þá er það í höndum minnar kynslóðar að moka upp þann skít. En í umsögninni segir, með leyfi forseta:
„Grasrótarhreyfingin Fellum frumvarpið fordæmir frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (alþjóðleg vernd, brottvísunartilskipunin, dvalar- og atvinnuleyfi), nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd), í daglegu [tali] kallað útlendingafrumvarpið.
Við styðjum og tökum undir umsagnir Íslandsdeildar Amnesty International, Kvenréttindafélags Íslands, Solaris, Rauða krossins, UNICEF á Íslandi, UN Women og Þroskahjálpar.
Við sem ungmenni í landinu höfum verulegar áhyggjur af skelfilegri þróun núverandi ríkisstjórnar í málefnum útlendinga. Við krefjumst þess að allar lagabreytingar sem standa til [verði] gerðar með mannréttindi að leiðarljósi. Frumvarpið stangast á við ákvæði í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem er lögfestur í íslenskum lögum. Þar með ber stjórnvöldum skylda til að fylgja honum. En í 3. gr. barnasáttmálans kemur fram að stjórnvöld eigi að taka ákvarðanir sem varða börn byggt á því sem er börnunum fyrir bestu. Auk þess þá brýtur frumvarpið [gegn] 1. gr. jafnréttislaga. Frumvarpið veitir stjórnvöldum heimild til að senda flóttamenn til ríkja sem ekki eru talin örugg móttökuríki, eins og Rauði krossinn hefur bent á. Þar má nefna Ungverjaland og Grikkland. Þetta er brot á mannréttindum og réttindum barna. Með þessu frumvarpi verða konur á flótta settar í enn viðkvæmari stöðu og þá eykst hættan [á] að þær verði fyrir ofbeldi í sínu heimalandi eða öðrum óöruggum móttökuríkjum. Einnig hefur þetta áhrif á aðra jaðarhópa og fólk í viðkvæmri stöðu, þetta frumvarp stefnir þeim í hættu. Frumvarpið tekur ekki tillit til fatlaðs fólks, hinsegin og trans einstaklinga. Það verður að taka tillit til sérstöðu fólks þar sem lagabreytingarnar munu ekki hafa sömu áhrif á allt fólk.
Við teljum að harkalegri og strangari stefna í málefnum flóttafólks og umsækjanda um alþjóðlega vernd sé röng leið að skilvirkara kerfi. Það að skerða verulega rétt flóttamanna [til] að fá mál sín skoðuð nægilega vel á grunni rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar og réttlátrar málsmeðferðar, er mannréttindabrot. Í frumvarpinu kemur fram að heilbrigðisþjónusta, lágmarksaðstoð og réttur til húsnæðis falli niður 30 dögum eftir synjun á alþjóðlegri vernd. Það veldur okkur miklum áhyggjum að velferð og öryggi flóttamanna sé hunsað í þessu frumvarpi og að þau njóti ekki grundvallarmannréttinda.
Eftirfarandi félög skora á dómsmálaráðuneytið, forseta Alþingis, Birgi Ármannsson, og ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að draga frumvarpið til baka og vinna það upp á nýtt í samstarfi við fagaðila þar sem virðing fyrir jafnrétti og mannréttindum eru höfð í hávegum.“
Ég sé að ég hef ekki mjög langan tíma til þess að klára að fara yfir umsögnina.
Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé bara rosalega mikilvægt sjónarmið sem ég var að koma hér á framfæri sem kemur frá ungu fólki og ungliðahreyfingum þvert á flokka við þetta frumvarp. Þau gera alvarlegar athugasemdir við þetta og skora síðan á hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórnina sem hún leiðir og forseta Alþingis og hæstv. dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneytið. Ef það er einhvern tímann tími til þess að taka mark á ungu fólki þá er það núna. Eins og ég segi og hef margoft sagt: Við erum kynslóðin sem þarf að moka upp skítinn eftir núverandi ráðamenn. Það verður ekki fallegt verk, það verður ekki skemmtilegt verk en við neyðumst til að gera það. Og ekki nóg með að við þurfum að bjarga heiminum frá loftslagsvánni sem er að fara eyða heiminum ef við höldum áfram á þessari braut, heldur þurfum við líka að snúa við einhverjum ömurlegum lögum sem margir eru búnir að vara við. Við þurfum að fara í gegnum heilt kostnaðarsamt ferli eftir að lögin eru búin að fara fyrir dómstóla, sem kostar sitt líka og hvaðan kemur peningurinn? Jú, úr ríkissjóði. Nei, við þurfum þá að eyða tíma Alþingis hér aftur til þess að snúa þessum lögum við. Við þurfum að kalla til umsagnaraðila, við þurfum að kalla til gesti á fundi allsherjar- og menntamálanefndar. Við þurfum að fara með þetta í gegnum þrjár umræður á Alþingi og hver veit nema einhver annar flokkur á þeim tíma muni vilja taka svo rosalega mikið til máls að það muni tefja málið?
Virðulegi forseti. Ég held praktískasta lausnin hér væri bara að taka þetta frumvarp til baka og ræða þessa efnislegu annmarka sem við erum búin að vera dugleg við að benda á hér.