153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[21:05]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Frú forseti. Ég hef hérna í síðustu ræðum verið að gera grein fyrir umsögn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands. Ég er nú langt kominn með hana og hef fulla trú á að ég nái að klára þá yfirferð í þessari ræðu þrátt fyrir að ræðutíminn sé alveg óþægilega stuttur. Með leyfi forseta held ég áfram að lesa þar sem frá var horfið.

„Í þessu sambandi er mikilvægt að 6. gr. frumvarpsins gerir ráð fyrir ákveðnum sérreglum um viðkvæma hópa og einnig er gert ráð fyrir að heimilt sé að fresta niðurfellingu réttinda vegna „sanngirnissjónarmiða“. Sú frestunarheimild á þó ekki við í öllum tilvikum, t.d. ef umsækjandi kom frá ríki sem er á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki. Þá segir í frumvarpinu að „grundvallarforsenda“ við beitingu undanþáguheimildarinnar sé að umsækjandi hafi „sannanlega sýnt samstarfsvilja við að fara aflandi brott“. Ummæli í athugasemdum við 6. gr. virðast miða að því að í framkvæmd verði um afar þrönga undanþágu að ræða. Má hér benda á að í fyrrgreindu máli gegn Hollandi tók félagsmálanefnd Evrópu berum orðum fram að ekki teldist heimilt að gera skilyrði neyðaraðstoðar að útlendingur sýni samstarfsvilja í sinni eigin brottvísun.

MHÍ telur því að lágmarki að ákvæði 6. gr. frumvarpsins þarfnist nánari skoðunar út frá því sjónarmiði hvort lágmarkskröfum þeirra mannréttindaákvæða sem nefnd hafa verið verði fullnægt.“

Undir þetta skrifar formaður stjórnar Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands.

Við að lesa þessa umsögn verður maður hálfhvumsa. Hér er afar hart að orði kveðið, svo ekki sé meira sagt, og bent á, ekki bara möguleika heldur fordæmi fyrir því að sams konar lagasetning rúmast ekki og var ekki samþykkt af Hæstarétti. Ég kemst alltaf meira og meira á þá skoðun, frú forseti, að við getum eiginlega ekki verið að fjalla um sama frumvarpið því að þetta getur ekki verið frumvarp til að auka skilvirkni ef það er ljóst að stór hætta er á því að þegar á reyni fyrir dómstólum landsins, og þá á endanum í Hæstarétti, verði þessir annmarkar sem eru á lagasetningunni til þess að fella brott þessar ákvarðanir. Þá er skaðinn skeður. Þá erum við búin að beita fólk harðræði og tíminn er dýrmætur fyrir fólk í leit að vernd. Ég vona að það sé ekki ætlunin, að það sé búið að þrengja svo að möguleikum fólks til að sækja rétt sinn að stjórnarliðar telji að það verði til að leysa vandann. Slíkt væri að mínu mati afar sorglegt og ég get ekki með góðri samvisku, í ljósi drengskaparheits við stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, séð hvernig það að samþykkja frumvarpið samræmist því drengskaparheiti. Það gengur einfaldlega ekki. Hér er um allt of mörg vafaatriði að ræða og mér finnst að stjórnarskrá lýðveldisins Íslands eigi í öllum tilvikum að njóta vafans.