útlendingar.
Forseti. Ég ætla að halda áfram að reifa hér samantekt úr umsögnum sem hafa borist um þetta frumvarp til laga. Ég var komin í umsögn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands. Þau telja afar óheppilegt að hvorki sé vísað til ákvæða stjórnarskrár né mannréttindasáttmála Evrópu. Í umsögninni segir, með leyfi forseta:
„Efni frumvarpsins varðar með augljósum hætti mannréttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Til dæmis: brottfall þjónustu (6. gr.) varðar 1. mgr. 76. gr. stjskr. og 65. gr. stjskr., breyttar reglur um endursendingar varða 68. gr. stjskr. og 3. gr. MSE, sbr. ítarlega dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins, sérákvæði um börn varða 3. mgr. 76. gr. stjskr., framkvæmd ákvarðana varða 71. stjskr. og 8. gr. MSE. […] [Ý]mis útfærsluatriði á málsmeðferð kunna að varða 70. gr. stjskr. og 6. og 13. gr. MSE hvað varðar rétt til aðgangs að dómstólum, réttláta málsmeðferð og rétt til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns. Óhjákvæmilegt er að löggjafinn taki skýra afstöðu, að undangengnu efnislegu mati, til þess hvort skilyrðum stjórnarskrárákvæða sé fullnægt.“
Mannréttindastofnun Háskóla Íslands vísar til nýlegs hæstaréttardóms frá 26. október 2022:
„Þar gagnrýnir Hæstiréttur að í frumvarpi til breytinga á lögum um lax- og silungsveiði sé, líkt og í frumvarpi því sem hér er til umsagnar, tekið fram að ekki hafi þótt tilefni til að skoða sérstaklega samræmi við stjórnarskrá. Um þetta segir Hæstiréttur:
„Við undirbúning að setningu laga nr. 50/2015 virðist því ekki hafa verið litið til þýðingar 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar og 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu að þessu leyti þótt ríkt tilefni væri til. Við breytingar á verkefnum veiðifélaga með lögum nr. 50/2015 sinnti löggjafinn því ekki stjórnskipulegri skyldu sinni til að meta hvort lagasetning rúmaðist innan þeirra marka sem stjórnarskráin setur.““
Mannréttindastofnun Háskóla Íslands hnýtir í að í frumvarpinu segi að það sé í samræmi við löggjöf og framkvæmd annars staðar á Norðurlöndunum, umgjörð annarra Evrópuríkja, að fyrirmynd annarra Evrópuríkja o.s.frv. Þessi samanburður er ekki rökstuddur með tilvísunum í löggjöf viðkomandi ríkja og er því með öllu óljós. Það er heldur ekki tekin afstaða til þess hvers vegna frumvarpshöfundar telja aðra leiðina ákjósanlegri en hina.