útlendingar.
Frú forseti. Í ræðum mínum hér ég hef verið afar gagnrýninn á það samráðsleysi og sýndarsamráð sem mér sýnist hafa verið viðhaft við vinnslu þessa frumvarps. Að mörgu leyti þykir mér sýndarsamráð vera verra en ekkert þar sem sýndarsamráð veitir ákveðna tálsýn varðandi það að tekið sé mark á því sem sett er fram. Og þar sem ekki virðist hafa verið mikill vilji til að nýta það sem kemur fram í þessum umsögnum þá langar mig að sýna þeim þá virðingu að gera þeim þá skil hér í ræðustól Alþingis. Mig langar, með leyfi forseta, að grípa niður í umsögn presta, innflytjenda og flóttafólks um þetta frumvarp.
„Undirrituð eru prestar innflytjenda og flóttafólks og vinna að málefnum fólks á flótta á vettvangi söfnuða Þjóðkirkjunnar. Við höfum áður veitt umsögn um framangreint frumvarp, eða þann 31. maí, 2022. Eftirfarandi er umsögn okkar um þær breytingar sem hafa orðið á frumvarpinu frá því í maí síðastliðnum. Við teljum enn að margt í frumvarpinu sé ekki til þess fallið að bæta umgjörðina utan um þennan málaflokk með sjálfsögð mannréttindi allra manneskja að leiðarljósi. Frumvarpið uppfyllir ekki þörfina á að bæta hvernig við mætum þessu fólki né hvernig milda megi áföll þeirra.
Almennar athugasemdir. Í fyrsta lagi vilja undirrituð vilja lýsa yfir því að við styðjum eindregið framkomna umsögn Rauða krossins á Íslandi um frumvarpið. Hér að neðan er að finna athugasemdir okkar við frumvarpið. Við undirrituð erum ekki lögfræðimenntuð en þekkjum málaflokkinn vel þar sem starf okkar felst í stórum hluta í þjónustu við þann hóp sem sækir um alþjóðlega vernd hér á landi. Ein af meginskyldum okkar sem prestar innflytjenda er að vera málsvari fyrir þann hóp sem til okkar leitar. Í þessari umsögn beinum við athyglinni að 6. grein frumvarpsins.
Um 6. gr. Undirrituð telja að breytingartillaga 6. gr., sem felur það í sér að réttur umsækjenda um alþjóðlega vernd verði felldur niður 30 dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar í máli hans á stjómsýslustigi, muni hafa afar neikvæð áhrif á þá einstaklinga sem falla undir ákvæðið. Ef breytingin nær fram að ganga þá þýðir það að grundvallarþjónusta er varðar heilsu, öryggi og velferð verður tekin frá viðkomandi einstaklingum sem þurfa þá að leita skjóls á götunni, hafi þau ekki yfirgefið landið sjálfviljug. Að okkar mati hlýtur slík framkvæmd af hálfu ríkisins að stangast á við grundvallarstefnu íslensku þjóðarinnar sem byggir á virðingu fyrir mannréttindum og skyldu okkar til að standa vörð um velferð allra sem dvelja á landinu.
Þær manneskjur sem hingað koma í leit að alþjóðlegri vernd hafa yfirleitt lítið eða ekkert tengslanet hér á landi. Þau sem njóta ekki lengur stuðnings stjórnvalda, eru því líklegri til þess að finna sig í óæskilegum aðstæðum til þess eins að sjá fyrir sér. Það er staðreynd að fólk á flótta er viðkvæmur hópur sem er berskjaldaðri en aðrir fyrir því að verða fórnarlömb mansals og ofbeldis. Við teljum afar mikilvægt að hlúa áfram að þessum hópi til þess að það hann komist ekki í slíkar örvæntingafullar aðstæður að það skapi ný vandamál sem hefðu afar neikvæð áhrif á þessa einstaklinga og samfélagið allt. Sem myndi fylgja ýmis beinn og óbeinn kostnaður við að bregðast við. Það er fyrirsjáanlegt að niðurfelling grunnþjónustu þvingar fólk í erfiða stöðu sem aftur skapar álag á önnur félagsleg kerfi eins og til dæmis sveitarfélög og ýmis hjálparsamtök, þangað sem fólk leitar í neyð. Það er reynsla okkar í samskiptum við þann hóp fólks sem hingað er kominn í leit að alþjóðlegri vernd, að þetta fólk á sér þá ósk heitasta að fá tækifæri til að framfleyta sér og að verða virkir þegnar í samfélaginu.“
Eins og svo oft áður, frú forseti, er ég ekki búinn að ná að fara yfir þessa umsögn og óska þess því að fá að fara aftur á mælendaskrá.