153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[21:26]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Frú forseti. Ég ætla að halda áfram yfirferð minni á umsögnum og samantekt úr þeim. Ég var komin að Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og vegna þess að tíminn rann út hjá mér áðan þá langar mig aðeins að lesa aftur um eina málsgrein frá Mannréttindastofnun Háskóla Íslands þar sem þau segja eftirfarandi, með leyfi forseta:

Mannréttindastofnun Háskóla Íslands hnýtir einnig í að í frumvarpinu segir að það sé í samræmi við löggjöf og framkvæmd annars staðar á Norðurlöndunum, umgjörð annarra Evrópuríkja, að fyrirmynd annarra Evrópuríkja o.s.frv. Þessi samanburður er ekki rökstuddur með tilvísunum í löggjöf viðkomandi ríkja og er því með öllu óljós. Það er heldur ekki tekin „afstaða til þess hvers vegna frumvarpshöfundar telja aðra leiðina ákjósanlegri en hina. Án slíkra útskýringa eru óljósar tilvísanir til erlendra laga ekki gagnlegar við mat á efni frumvarpsins“.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég persónulega rek mig á það að það er ekki rökstutt hvers vegna hlutirnir eru gerðir eða hvers vegna á að gera þá eins og lagt er til. Ég átta mig einhvern veginn ekki á því af hverju stjórnvöld telja sig ekki þurfa að rökstyðja hvers vegna þessi leið er farin en ekki hin. Hvaða rannsóknir liggja að baki? Eða eins og þarna segir: Hvaða Evrópuríki? Hvað er það? Af hverju er það betra en eitthvað annað? Er til önnur leið? Var búið að skoða það? Hverjar voru niðurstöðurnar? Erum við með önnur ríki þar sem það var gert? Ef maður spáir í hvernig vísindi eru og hvernig maður ákveður hvaða leiðir eru farnar í bara öllu þá vill maður vera með mörg sjónarhorn, maður vill vera með margar aðferðir og maður vill stilla þeim öllum upp hlið við hlið og skoða þær. Það væri réttasta leiðin. Og síðan rökstyðja af hverju þessi leið var valin og hverjir eru gallarnir og hverjir eru kostirnir og allt þetta. Mannréttindastofnun Háskóla Íslands veltir þessu fyrir sér og segir að þau séu ekki með þessar útskýringar, einungis óljósar tilvísanir til erlendra laga, og því sé það ekki gagnlegt fyrir þau til að meta efni frumvarpsins. Það vantar upplýsingar. Það vantar eitthvað á bak við þetta. Af hverju erum við að gera þetta? Af hverju er þetta gert svona? Það þarf að rökstyðja svona hluti miklu, miklu betur. Það þarf í alvörunni að skoða allar mögulegar leiðir og hver kostnaðurinn er fyrir samfélagið, t.d. það að skerða þjónustu, framfærslu, húsnæði, allt þetta eftir 30 daga. Hverjar eru mögulegar afleiðingar? Við þurfum að horfast í augu við það sem mögulega á að gera og það sem lagt er til vegna þess að annars erum við ekki undirbúin fyrir allan kostnaðinn, alla neyðina, alla eymdina sem gæti orðið í kjölfarið ef þetta er ekki gert vel. Og hver ber þá ábyrgð?

Ég verð að segja að ég er mjög sammála Mannréttindastofnun Háskóla Íslands. Ég náði ekki að fara yfir allt sem ég ætlaði að fara yfir þannig að ég vil fara aftur á mælendaskrá.