153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[21:32]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Áfram, svona rétt til að ljúka þessari yfirferð. Hér vorum stödd haustið 2017 við samþykkt laga nr. 80/2017 þar sem þingflokkur Sjálfstæðisflokks greiddi atkvæði gegn því að skjóta skjólshúsi yfir börn á flótta, sem við hin á þingi töldum kannski góða leið til að ljúka því sem varð ansi endasleppt og lágreist kjörtímabil, kjörtímabil ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar sem náði ekki nema 364 dögum. Þar af var ríkisstjórnin við völd í innan við tíu mánuði og ýmis umdeild mál sem plöguðu stjórnarflokkana. Það var leið til að hlaupa út í kosningabaráttu með smá bros á vör, að geta samþykkt ívilnandi breytingar á útlendingalögum í þágu barna á flótta, þótt um væri að ræða bráðabirgðaákvæði með mjög stíf sólarlagsákvæði þannig að þetta gilti bara um einstaklinga sem voru hér á landi á því augnabliki sem lögin voru samþykkt. Það skipti samt miklu máli fyrir tugi barna sem fengu með þessu efnislega meðferð og bagalegt, það er nú kannski orðið til að lýsa því, að einn flokkur hafi ákveðið að skilja sig með svo afgerandi hætti frá okkur hinum og í því ljósi enn óskiljanlegra þegar þeim flokki var stuttu síðar leyft að dvelja áfram heilt kjörtímabil í dómsmálaráðuneytinu í boði þess flokks sem bar fram þetta mál sem Sjálfstæðisflokkurinn snerist gegn. Vinstri græn áttu fyrsta flutningsmann að þessu frumvarpi og töluðu ansi hreint út um það hversu ótrúlegt það væri að Sjálfstæðisflokkurinn treysti sér ekki til að styðja þessa sjálfsögðu réttarbót. En svo stuttu seinna sneri flokkurinn sér við og rétti lyklana þangað.

Stuttu eftir stjórnarskipti, rétt fyrir jól 2017, voru samþykkt lög 86/2017, sem er enn eitt dæmið um leiðréttingu á útlendingalögunum, en þar var tekið til eitt af þeim atriðum sem höfðu skolast til þessa heildarendurskoðun þannig að réttur iðnnema til dvalarleyfis hafði orðið þrengri en var í fyrri lögum, hafði ekki færst rétt yfir á milli laga. Eðli máls samkvæmt þá studdi allur þingheimur þessa breytingu.

Síðan þá hefur í rauninni bara verið gerð ein teljandi efnisleg breyting á frumvarpinu þrátt fyrir mikið ákall um lagfæringar á ýmsu. Það frumvarp sem við ræðum hér í dag er kannski ákall úr hinni áttinni, ákall um minni mannúð og meira íþyngjandi löggjöf. Það hefur lagt fram, eins og fram hefur komið, ítrekað. En eina lagabreytingin sem snýr beinlínis að efni og inntaki útlendingalaga var lögð fram hér haustið 2018 af þáverandi dómsmálaráðherra Sigríði Á. Andersen og varð síðan að lögum nr. 149/2018 og snerist um skilvirkni. Blessuð skilvirknin sem alltaf er í togstreitu við mannúðina í markmiðsákvæðum laganna. Og þetta eina frumvarp með efnislegri breytingu í stjórnartíð Katrínar Jakobsdóttur var íþyngjandi. En förum betur yfir það síðar.