útlendingar.
Herra forseti. Ég hef verið hér í síðustu ræðum að gera grein fyrir umsögnum, sérstaklega í ljósi þess að þær virðast hafa verið afar lítið veganesti inn í þá vinnu sem fór fram um þetta frumvarp og langar mig, með leyfi forseta, að halda áfram að gera umsögn presta innflytjenda og flóttafólks skil hér. Ég held áfram þar sem frá var horfið:
„Margvíslegar ástæður geta valdið því að fólk yfirgefi ekki landið sjálfviljugt eftir að endanleg synjun liggur fyrir í máli þeirra, sem dæmi eru einstaklingar sem hafa fengið alþjóðlega vernd á Grikklandi, Ítalíu og Ungverjalandi og er synjað um vernd hér á þeim forsendum, en telja sig ekki örugg í þeim ríkjum. Við viljum einnig ítreka afstöðu okkar sem fram kom í fyrri umsögn um þetta frumvarp, að í þeim tilfellum þar sem fólk hefur fengið alþjóðlega vernd í ofangreindum löndum er um að ræða afar takmarkaða vernd. Það er staðreynd að í þessum ríkjum hefur fólk á flótta litla sem enga möguleika á mannsæmandi lífi, þar sem það getur sótt vinnu og séð fyrir sér, hefur aðgang að heilsugæslu sem og öðrum atriðum sem kveðið er um í mannréttindaákvæðum, og getur því að okkar mati ekki talist „vernd“ í því landi heldur er það fólk raunverulega enn á flótta þótt að það sé „tæknilega“ með landvistarleyfi. Við hvetjum stjórnvöld til að rjúfa ekki ábyrgð sína á velferð fólks sem hefur fengið endanlega synjun meðan þau dvelja enn hér á landi. Afleiðingarnar eru annars ófyrirséðar en um leið dýrkeyptar fyrir fólk sem fór ekki sjálfviljugt frá sínu heimalandi, heldur var það að flýja óþolandi og óbærilegar aðstæður. Okkur þykir ljóst að verði þessi 6. gr. samþykkt óbreytt þá muni íslenska ríkið gerast sekt um brjóta gegn þeim mannréttindasáttmálum sem stjórnvöld hafa fullgilt og heitið að virða.
Við ítrekum stuðning okkar við greinargóða umsögn Rauða krossins um frumvarpið að öðru leyti. Guð blessi Alþingi Íslendinga og mikilvæg störf þess.“
Undir þetta rita prestar innflytjenda og flóttafólks.
Virðulegi forseti. Það er eins með þessa umsögn og svo margar aðrar, hér er á ferðinni fólk sem talar af reynslu. Þetta er fólkið á gólfinu. Þetta er fólkið sem sér í hverju vandamálin felast og vandamálin sem þau sjá og benda á verða ekki leyst með þessu frumvarpi né heldur er þar að finna þær lausnir sem lagðar eru til í umsögnum almennt um frumvarpið. Ég hef kallað eftir því að fá á hreint í hverju skilvirknin felst sem þessu frumvarpi er ætlað að koma á, því að skilvirkni á einu sviði getur auðveldlega komið niður á skilvirkni í öðru. Þess vegna er skilvirkni án þess að því fylgi í hverju hún felst eða inn í hvaða þætti málaflokksins hún á að koma — þá er hugtakið gagnslaust. Ef við viljum svo á annað borð auka skilvirkni á þann hátt að gera meira úr því sem lagt er í málaflokkinn þá leysir þetta frumvarp ekkert vandamál né kemur á þeirri skilvirkni. Það getur það einfaldlega ekki. Ég hef engin svör fengið við þessu, herra forseti.