útlendingar.
Herra forseti. Áðan vísaði ég í umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands varðandi 2. gr. frumvarpsins þar sem ég svoleiðis emjaði af gleði af því að þau vísuðu í málsmeðferðarreglu stjórnsýslulaga og andmælaregluna. Það er bara gaman og gott að sjá að ég er ekki eina manneskjan sem er að gera athugasemdir við þetta ákvæði enda hafa margir aðrir þingmenn komið hingað upp í pontu og gert sömu athugasemd. En við umræðu um þetta lagafrumvarp ber að hafa grundvallarreglur stjórnsýsluréttar í huga. Því ætla ég að halda áfram að lesa úr umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands varðandi 6. gr. Þar segir, með leyfi forseta:
„Í 6. gr. frumvarpsins er lögð til sú breyting að réttur til þjónustu umsækjenda um alþjóðlega vernd falli á brott 30 dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar í máli en þó megi ekki fella niður réttindi barna, foreldra eða umsjónarmanna þeirra og annarra heimilismanna sem teljast til ættingja barna, barnshafandi kvenna, alvarlegra veikra einstaklinga og fatlaðra einstaklinga með langvarandi stuðningsþarfir. Þau réttindi sem hér um ræðir og fjallað er um í 33. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 eru grundvallarmannréttindi, svo sem réttur til heilsu og mannsæmandi lífs. Réttindi þessi eru tryggð í samningi Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, sem Ísland er aðili að og hefur fullgilt. Íslensk stjórnvöld hafa vissum skyldum að gegna við fólk sem statt er hér á landi og verða að gæta þess að þau fari ekki gegn þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem þau hafa undirgengist. Þá hljóta mannúðarsjónarmið að vega þungt í þeim tilvikum sem 1. og 6. gr. frumvarpsins taka til, alls kyns ástæður kunna að liggja að baki því að ekki er unnt að senda einstaklinga úr landi og hljóta þeir að eiga að njóta vafans, einnig þó talið sé að um skort á samstarfsvilja sé að ræða. Verður að telja óásættanlegt að svipta fólk þjónustu, skilja það eftir heimilislaust, án framfærslu og viðunandi heilbrigðisþjónustu. Býður það upp á mansal, ofbeldi og aðra hagnýtingu á aðstæðum viðkomandi.
MRSÍ tekur ekki undir þær breytingar sem mælt er fyrir um í b-lið, 1. mgr. 1. gr. og 6. gr. frumvarpsins og færi að mati skrifstofunnar mun betur á því að veita þessum einstaklingum aðstoð til að geta séð fyrir sér sjálfir. Ef ákvæðið nær hins vegar fram að ganga þá er hvatt til þess að því verði beitt af mikilli varúð.“
Hér eru athugasemdir mannréttindaskrifstofunnar bara frekar skýrar og gerður er fyrirvari við þetta lagaákvæði sem og hvatt til þess að ef það skyldi koma til þess að 6. gr. yrði lögfest þá hvetur Mannréttindaskrifstofa Íslands stjórnvöld til þess að beita því af mikilli varúð.
Virðulegi forseti. Þegar það eru svona heimildir varðandi skerðingu á grundvallarmannréttindum fólks, heimild til beitingar, þá veit ég ekki hvernig hægt er að gæta þess að því verði beitt af mikilli varúð. Við erum með meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar sem ber að fara eftir og þetta ákvæði — ég er búin að fara yfir þetta ákvæði margoft, ég ætla kannski að gera það einu sinni enn á eftir eða í næstu ræðu minni — fer klárlega í bága við meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar af því að það verður að grípa til svo ótrúlega íþyngjandi aðgerða; það er verið að svipta fólk þjónustu, skilja það eftir heimilislaust, án framfærslu og viðunandi heilbrigðisþjónustu.
Virðulegi forseti. Þetta er eiginlega bara skilgreiningin á íþyngjandi aðgerðum gagnvart fólki í viðkvæmri stöðu. Og ekki bara gagnvart fólki í viðkvæmri stöðu; ég er í mjög góðri stöðu en ef einhver myndi beita þessum aðgerðum á mig þá veit ég ekki hvað myndi gerast. Því hvet ég stjórnvöld, og ekki bara stjórnvöld, ég hvet þingheim til þess að fella niður þetta ákvæði af því að ég sé ekki hvernig þetta samræmist jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, réttmætisreglunni og meðalhófsreglunni. En eins þá sé ég ekki hvernig það er hægt að gæta meðalhófs við beitingu þessara laga. Þetta er rosalega íþyngjandi heimild sem fæst með þessu lagaákvæði. Það eru rosalega íþyngjandi aðgerðir sem stjórnvöld geta gripið til í skjóli þessa lagaákvæðis sem kærunefnd Útlendingastofnunar er, nota bene, búin að komast að að sé ólögmæt, þannig að nú er hæstv. dómsmálaráðherra bara að festa þetta lagaákvæði í lög og veita því lagastoð.
Virðulegi forseti. Ég sé að ég er að renna út á tíma en ég er ekki búin og óska eftir að verða sett aftur á mælendaskrá.