útlendingar.
Herra forseti. Hérna í fyrri umræðum í kvöld um fundarstjórn höfum við verið að velta fyrir okkur hvort einhver hæstv. ráðherra muni sjá sér fært að taka þátt í umræðunni og höfum fengið þær fregnir að í það minnsta tveir ráðherrar séu staddir erlendis og geti því ómögulega tekið þátt. En gaman væri að heyra hvað sé að frétta af hinum. Jafnframt langar mig að lýsa yfir áhyggjum af því ef fundur mun standa langt fram eftir nóttu, að möguleikar þeirra sem heima sitja til að fá nægan nætursvefn gæti verið í hættu ef fólk ætlaði sér að fylgjast með þessari fræðandi og góðu umræðu sem hér fer fram. Ég velti fyrir mér hvort það sé kannski eitthvað sem þurfi mögulega að hafa í huga, að fólk fái örugglega nægan nætursvefn.