153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[21:56]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Ég tek undir með hv. þm. Andrési Inga Jónssyni, að það væri afar ánægjulegt að sjá stjórnarliða og þau sem eru samþykk frumvarpinu mæta og taka þátt í umræðunni. Ég myndi raunar fagna því vegna þess að ég gef mér, miðað við það sem ég hef kynnt mér um þetta frumvarp, að hér séu slíkir annmarkar á að það sé brýnt að við leysum úr því og fáum umræðuna og þá verði bent á hvar við höfum rangt fyrir okkur ef svo ber undir. Mikið yrði ég glaður ef það kæmi fram að allt það sem ég er að hafa áhyggjur af varðandi þetta frumvarp sé raunverulega bara tóm þvæla og þvættingur og að engra áhyggna sé þörf.