153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[21:57]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég ætla taka undir með hv. þingmönnum sem hingað hafa upp komið. Ég ætla bara að taka það fram að mér þykir svolítið vænt um það þegar þingmenn minni hlutans gera ákall um viðveru stjórnarliða og þá mætir hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, sem er líka formaður hv. allsherjar- og menntamálanefndar, labbar hérna fram hjá. Og ég verð alltaf jafn bjartsýn: Heyrðu, nú tekur hún þátt í þessum umræðum. Það gerist svo sem ekki, en mér þykir samt sem áður vænt um að hún sé að hlusta og vonandi verður tekið tillit til allra athugasemda sem fram hafa komið af því við erum búin að vera að hamra svolítið á sömu hlutunum. Þannig að ég held að það fari ekki beint fram hjá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur hvað við teljum að sé best að ræða efnislega þegar málið verður aftur tekið inn í nefnd á milli 2. og 3. umr. (BHar: Þetta er allt komið til skila.) — Þetta er allt komið til skila, segir hv. þingmaður. Það gleður mig bara rosalega mikið. Ég vonast eftir því að það verði tekin efnisleg og góð umfjöllun inni í nefnd um þessi mál sem við höfum komið á framfæri.