útlendingar.
Herra forseti. Áfram heldur sagnfræðin. Mig langar að fjalla um þá einu raunverulegu efnislegu breytingu sem hefur verið gerð á útlendingalögum í tíð núverandi ríkisstjórnar sem var í desember 2018 samþykkt sem lög nr. 149/2018. Þar var um að ræða safnlagafrumvarp. Þar var verið að gera ýmsar breytingar, sumar lagfæringar, tiltekt þar sem þurfti svona að slétta úr misfellum eftir heildarendurskoðun laganna. Svo þurfti líka að koma inn einhverjum breytingum til að tryggja virkni Schengen-upplýsingakerfisins á Íslandi. En síðan voru nokkrar vafasamar breytingar sem voru það umdeildar að málið náði ekki fram að ganga á vorþingi 2018. Það var síðan lagt fram aftur og einhvern veginn náðist að kreista það hér í gegn rétt fyrir jól 2018 þrátt fyrir að t.d. Rauði krossinn lýsti töluverðum áhyggjum vegna tveggja, jafnvel þriggja ákvæða. Í fyrsta lagi var þar um að ræða auknar heimildir formanns og varaformanns kærunefndar útlendingamála til þess að úrskurða einir frekar en að fullskipuð kærunefnd kæmi að. Það var sagt í greinargerð frumvarpsins að þetta myndi ekki hafa áhrif á rannsókn eða undirbúning málanna, sú vinna yrði eftir sem áður í höndum kærunefndarinnar sem stofnunar og endanlegir ákvörðunaraðilar myndu kannski ekki skipta öllu máli þannig séð. En Rauði krossinn taldi mjög ljóst að þetta myndi leiða til óvandaðri málsmeðferðar og jafnvel opna fyrir það að formaður og varaformaður gætu úrskurðað einir í málum þrátt fyrir að það væri vafi á að málsatvik hafi verið rannsökuð á fullnægjandi hátt.
Þetta er eins og við erum að kljást við í þessu frumvarpi sem er til umræðu hér í dag. Þar er lagt til að undanskilja umsækjendur um alþjóðlega vernd frá hinum almennu reglum stjórnsýsluréttarins. Með þessari breytingu var hluti þess hóps undanþeginn frá þeirri vönduðu málsmeðferð sem lagt var upp með í kringum kæruferlið. Það liggur í augum uppi að fjölskipuð kærunefnd tryggir vandaðri málsmeðferð en að einstaka fulltrúar í nefndinni komi að ákvörðunum.
Hitt stóra ágreiningsefnið snerist um það sem heitir í greinargerð með frumvarpinu að gera ferli við boðun umsækjanda um vernd í viðtal skilvirkara. Og þegar ráðuneytið notar skilvirkni í fyrstu setningu í greinargerð þá verður maður smá stressaður. En þá snerist það um að boðunarferlið var tvöfalt þannig umsækjandi var boðaður í viðtal og ef hann brást ekki við þeirri boðun þá var boðunin ítrekuð og ef hann brást ekki við þeirri boðun þá var ákveðið ferli þannig að það mætti líta á þetta sem bara niðurfallna umsókn, liggur við. En skilvirknin í þessu frumvarpi sem varð að lögum snerist um að í stað tveggja boðanna kæmi eitt. — Ég lýk þessu kannski hérna á eftir.