útlendingar.
Herra forseti. Eftir því sem ég fer yfir fleiri umsagnir þeim mun furðulegra þykir mér að ekki hafði verið litið meira til þeirra við vinnslu þessa frumvarps. Ætla ég því að halda áfram að gera grein fyrir þeim hér og langar mig nú, með leyfi forseta, að grípa niður í umsögn embættis landlæknis:
„Efni: Frumvarp til laga um útlendinga (alþjóðleg vernd), 382. mál. Með tölvupósti nefndasviðs Alþingis 28. október sl. sendi velferðarnefnd embætti landlæknis ofangreint frumvarp til umsagnar. Frumvarpið er yfirgripsmikið og hefur ekki með að gera hlutverk og þekkingu embættis landlæknis nema í 6. gr. Þar er lagt til að réttur til þjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd falli niður 30 dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar um synjun. Vissulega eru þar taldar upp undantekningar; barnshafandi konur, alvarlega veikir einstaklingar og fatlaðir einstaklingar. Af frumvarpinu verður ráðið að þrátt fyrir undanþáguákvæði geti komið upp sú staða að fólk verði svipt rétti til heilbrigðisþjónustu. Slíkt er óásættanlegt. Þeir sem undir þetta falla geta, rétt eins og aðrir og e.t.v. enn frekar en aðrir, glímt við sjúkdóma og heilsufarsvandamál sem nauðsynlegt er að bregðast við utan téðra tímamarka. Vart þarf að fjölyrða um alvarlegar afleiðingar sem stöðvun heilbrigðisþjónustu, hvort heldur er vegna langvinnra sjúkdóma eða bráðra, getur haft í för með sér, ef ekki er brugðist við því sem upp kemur. Embætti landlæknis telur að öll nauðsynleg heilbrigðisþjónusta eigi að vera undanskilin. Það að njóta heilbrigðisþjónustu eru grundvallarmannréttindi en í Alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi nr. 10/1979 segir m.a. í 12. gr. um „rétt sérhvers manns til þess að njóta líkamlegrar og andlegrar heilsu að hæsta marki sem unnt er“. Fyrir utan það að það er ómannúðlegt að neita einstaklingi um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu getur það boðið heim hættu fyrir aðra ef t.d. einstaklingur er haldinn smitsjúkdómi eða geðröskun sem hugsanlega eru ekki metnir alvarlegir við fyrstu sýn. Embætti landlæknis leggur því til að öll nauðsynleg heilbrigðisþjónusta verði talin upp í undantekningum í 6. gr.“
Undir þetta ritar landlæknir.
Það er eins og með svo margar aðrar umsagnir að við að lesa þær grunar mig sífellt meira og meira að við getum eiginlega ekki verið að tala um sama frumvarpið. Við getum ekki verið að tala um sama textann vegna þess að það ber svo mikið á milli. Í þessum umsögnum koma fram alvarlegar athugasemdir. Við þeim er ekki brugðist. Það er óskað eftir umsögnum og við þeim er ekki brugðist. Það er eiginlega óskiljanlegt vegna þess að umsagnirnar sem koma fram í þessu máli eru svo verðmætar. Það koma fram svo verðmæt og gagnleg sjónarmið að það að ekki skuli vera brugðist við stenst enga skoðun. Og það er það sem við erum að tala um, það er það sem við erum að óska eftir. Þetta snýst ekki um það að við viljum ekki breytingar á lögum um útlendinga. Það þarf að gera breytingar. Það þarf hins vegar að gera réttu breytingarnar og réttu breytingarnar er að finna í umsögnunum. Samráðið sem óskað var eftir, það stendur ekki á því af hálfu þeirra sem óskað var eftir samráði frá en það stendur á efndum frá Alþingi. Þetta er óskiljanlegt.