útlendingar.
Forseti. Ég ætla að halda áfram þar sem frá var horfið í yfirferð minni yfir umsögn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands. Þar sem tími minn rann út áðan þegar ég var að ræða það sem Mannréttindastofnun Háskóla Íslands nefndi í sinni umsögn langar mig aðeins að ræða að þau tiltaka ákvörðun félagsmálanefndar Evrópu gegn Hollandi, mál 90/2013. Niðurstaðan varð sú að synjun á lágmarksframfærsluaðstoð við ólöglega innflytjendur væri andstæð 13. gr. félagsmálasáttmála Evrópu, enda gæti slík synjun leitt til heimilisleysis og skorts á lágmarksnauðsynjum.
Ísland er einnig bundið af félagsmálasáttmála Evrópu. Það er einmitt sérstaklega vísað til hans í lögskýringargögnum að baki 76. gr. stjórnarskrárinnar. Grundvallarforsenda undanþágu heimilda frumvarpsins til að þjónusta falli ekki niður er að útlendingur hafi „sannanlega sýnt samstarfsvilja við að fara af landi brott“. Því er vert að nefna að í fyrrgreindum máli gegn Hollandi tók félagsmálanefnd fram berum orðum að ekki teldist heimilt að gera skilyrði neyðaraðstoðar að útlendingur sýni samstarfsvilja í sinni eigin brottvísun. Það er ótrúlegt að þjónusta, grunnþjónusta, eigi að vera veitt með einhvers konar skilyrðum, að þú getir ekki fengið grunnþjónustu nema einstaklingurinn sýni samstarfsvilja við að fara af landi brott. Einstaklingur sem er mögulega hræddur, óöruggur og veit ekkert hvað bíður hans, mögulega einstaklingur sem kom til landsins sem fylgdarlaust barn og var úrskurðaður sem fullorðinn einstaklingur 18 ára og mögulega einhverra mánaða — þannig að þetta er bara mjög góð og alvarleg athugasemd hjá Mannréttindastofnun Háskóla Íslands.
Ég ætla síðan líka að tala um umsögn sem kom frá prestum innflytjenda og flóttafólks. Þeir byrja á að nefna hérna brottfall þjónustu, sem er 6. gr. frumvarpsins. Þeir segja, með leyfi forseta:
„Ef breytingin nær fram að ganga þá þýðir það að grundvallarþjónusta er varðar heilsu, öryggi og velferð verður tekin frá viðkomandi einstaklingum sem þurfa þá að leita skjóls á götunni, hafi þau ekki yfirgefið landið sjálfviljug. Að okkar mati hlýtur slík framkvæmd af hálfu ríkisins að stangast á við grundvallarstefnu íslensku þjóðarinnar sem byggir á virðingu fyrir mannréttindum og skyldu okkar til að standa vörð um velferð allra sem dvelja á landinu.“
Prestar innflytjenda og flóttafólks eru ekki einir um þessa gagnrýni. Það fylgja margir umsagnaraðilar sem hafa gagnrýnt nákvæmlega þessa grein og hafa áhyggjur því sama. — Ég ætla að biðja forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.