153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[22:30]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Herra forseti. Ég ætla að halda áfram þar sem frá var horfið þar sem ég var að reifa umsagnir eða samantekt umsagna sem borist hafa um þetta frumvarp til laga. Ég var hér í fyrri ræðu minni að tala um umsögn presta innflytjenda og flóttafólks og vil halda því áfram. Með leyfi forseta segja þau:

„Það er staðreynd að fólk á flótta er viðkvæmur hópur sem er berskjaldaðri en aðrir fyrir því að verða fórnarlömb mansals og ofbeldis. Við teljum afar mikilvægt að hlúa áfram að þessum hópi til þess að hann komist ekki í slíkar örvæntingafullar aðstæður að það skapi ný vandamál sem hefðu afar neikvæð áhrif á þessa einstaklinga og samfélagið allt. Sem myndi fylgja ýmis beinn og óbeinn kostnaður við að bregðast við.“

Prestar innflytjenda og flóttafólks eru ekki þau einu sem hafa miklar og alvarlegar áhyggjur af því sem þau nefna hér, af þeirri viðkvæmu stöðu sem verið er að setja þetta fólk í. Ég velti því fyrir mér hvort stjórnvöld geri sér í raun og veru grein fyrir því hversu mikil neyð getur skapast og hvað getur gerst þegar fólk upplifir sig í mikilli neyð. Mér þættu það góð vinnubrögð ef það væri skoðað. Hvað hefur gerst annars staðar þar sem þetta hefur verið gert og hvernig afleiðingar hefur það fyrir einstakling að missa allt og enda á götunni? Erum við að skemma einhver líf? Mögulega. En við þyrftum að skoða það og fá gögn: Bíddu, af hverju ætlum við að fara þessa leið? Hvað mælir með því og hvað mælir á móti því? Það eru alveg pottþétt alls konar hlutir sem kæmu upp úr dúrnum sem er ekki búið að skoða til hlítar, sem er ekki búið að taka tillit til, sem er ekki búið að sjá fyrir og verður stærra vandamál en við gerum okkur grein fyrir. Það er ekki svo einfalt að fólk fari bara af því að við ætlum að taka allt frá þeim. Þetta er ekki svona klippt og skorið. Þetta er ekki auðvelt og þetta er alls ekki það sem við sem Íslendingar viljum vera þekkt fyrir.

Prestar innflytjenda og flóttafólks segja einnig hérna, með leyfi forseta:

„Það er fyrirsjáanlegt að niðurfelling grunnþjónustu þvingar fólk í erfiða stöðu sem aftur skapar álag á önnur félagsleg kerfi eins og t.d. sveitarfélög og ýmis hjálparsamtök, þangað sem fólk leitar í neyð.“

Það er nefnilega þannig að þessir einstaklingar munu verða álag á kerfið á öðrum stöðum, á annan hátt og mögulega meira álag, fá ekki t.d. geðheilbrigðisþjónustu eða annað.