153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[22:35]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Mig langar fyrst og fremst að biðja þau sem eru að fylgjast með þessari spennandi og langdregnu umræðu afsökunar á því að hafa þurft að ljúka máli mínu hér áðan eftir að hafa reifað bara einn dóm. Ég náði að reifa dóminn um Frama, leigubíladóminn, eins og annað fólk kallar hann, um heimildarþátt lögmætisreglunnar, og ég var við það að fara að reifa hæstaréttardóminn varðandi Eignaauka, sem varðar formþátt lögmætisreglunnar, en ég þyrfti að ljúka máli mínu vegna þess að tíminn er vissulega rosalega knappur. Fimm mínútur eru eiginlega ekki neitt. Ég er í, hvað, 54. ræðu minni eða eitthvað þannig og mér finnst að þetta ætti að vera 20. ræðan mín þannig séð af því að eins og ég segi: Fimm mínútur eru eiginlega ekki neitt.

En hvað varðar formþátt lögmætisreglunnar þá set ég, eins og ég geri mjög oft og ég held að fólk hafi gaman af, þá einkum kollegar mínir hér inni í þingsal, hluti í samhengi með því að vísa í annaðhvort álit umboðsmanns Alþingis eða í hæstaréttardóma, af því að mér er alveg sama hvað fólk segir; dómar Hæstaréttar eru bindandi, þetta eru fordæmisgefandi dómar og ég held að þetta ætti að teljast sem réttarheimild, en það er önnur umræða. En það er ekki bara ég sem segi það; bestu fræðimenn landsins segja að dómar Hæstaréttar séu réttarheimild. En að formþætti lögmætisreglunnar.

Í hæstaréttardómnum um Eignaauka reyndi á hvort öll vinna manns við íbúð hans teldist skattfrjáls eða einungis sá hluti sem væri stærri en fyrri íbúð, en því ákvæði var bætt inn í reglugerð. — Eruð þið með? Eruð þið að fylgist með? Ákvæði var bætt inn í reglugerð. En það var ekki talið heimilt að bjóða með reglugerð slíka skerðingu enda mælt fyrir um það í lögum að öll vinnan væri skattfrjáls. Því hafði ráðherra farið út fyrir valdsvið sitt og sett reglugerðina í efnislegu ósamræmi við lögin. Þetta varðar formþátt lögmætisreglunnar.

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort ég er bara búin að reifa þennan dóm svona ógeðslega oft, en mér líður eins og ég sé búin að útskýra lögmætisregluna á svo miklu mannamáli að það sé ekki hægt að útskýra hana betur. En ég held að það sé ekki málið.

Nú ætla ég að reyna að setja þetta í samhengi við útlendingalögin sem hér um ræðir, en þar er verið að setja einhver lög á fót sem fela í sér skerðingu á réttindum, bla bla. Segjum sem svo að einhverjar refsiaðgerðir hafi verið teknar á grundvelli reglugerðar sem er sett með stoð í lögum, af því að flestir lagabálkar heimila reglugerðarvald ráðherra, eins og t.d. orðalagið er bara: Ráðherra kveður nánar á um framkvæmd þessara laga í reglugerð, blablabla. Segjum sem svo að einhver refsiaðgerð verði tekin með vísun í þessi lög. En það er ekkert kveðið skýrt á um það í lögunum hvort það megi festa einhverja reglu sem hefur áhrif á réttindi og skyldur borgaranna í reglugerð. Hvað ef hæstv. dómsmálaráðherra ákveður bara að setja einhverja reglugerð sem er í efnislegu ósamræmi við lögin sem hér um ræðir? Ég held að það gæti alveg gerst úr því að þessi lög bjóða upp á svo víða túlkun, þau bjóða upp á það að lögunum sé beitt á rosalega íþyngjandi hátt. Ég hef bara rosalega miklar áhyggjur af því hvernig þessum lögum yrði beitt í framkvæmd, eins og ég hef komið inn á áður. Ég væri til í að láta gera úttekt á því hvort það séu líkur á því að þessi lög verði misnotuð. Ég held að það megi alveg færa rök fyrir því að það sé verið að misnota núverandi lög jafnvel þó að þau hafi verið samþykkt í þverpólitískri sátt. Stjórnvöldum ber engin skylda til þess að túlka lögin á þann hátt sem þau túlka þau akkúrat núna og þeim ber engin skylda til að beita þessum lögum á þennan íþyngjandi hátt sem er verið gera en þau hafa samt rými til þess. Því hugsa ég að með orðalagi þessara ákvæða, sér í lagi 6. gr. og 7. gr., sé verið að bjóða upp á ansi rúma túlkun hvað varðar beitingu lagaákvæðanna. Þetta mun auðvitað bara koma niður á þeim umsækjendum sem hingað leita í neyð og þetta mun reynast þeim íþyngjandi, sem er auðvitað bara það sem við eigum að reyna að forðast.

Ég hef ekki lokið máli mínu, forseti, og óska þess að vera sett aftur á mælendaskrá.