153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[22:41]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Hér var ég rétt að ljúka umfjöllun um frumvarp sem varð að lögum nr. 149/2018, sem þurfti tvær atrennur til að gera að lögum, enda með nokkuð íþyngjandi ákvæðum inn á milli. Þetta voru, að mig minnir, einar 13 greinar, þar af þrjár sem mætti segja að hafi komið töluvert niður á umsækjendum um alþjóðlega vernd. Í fyrsta lagi þessi sem snýr að því að formaður og varaformaður kærunefndar útlendingamála fengu aukna heimild til að úrskurða einir í málum. Í öðru lagi það sem ráðuneytið kallar skilvirkara boðunarferli, sem snerist um að fækka þeim skilaboðum, sem send voru á umsækjendur til að boða þau í viðtöl, úr tveimur í eitt, sem jók skilvirknina kannski ekkert mjög mikið út frá stofnuninni séð en jók töluvert hættuna á því að réttindi umsækjanda yrðu fyrir borð borin. Og síðan þriðja ákvæðið, sem var það umdeilt að þingflokkur Pírata greiddi atkvæði gegn því hér í þingsal og fulltrúar alla vega Samfylkingar sátu hjá. Það snerist um dvalarleyfisumsóknir — nú er ég búinn að týna blaðinu sem ég var með um þetta. Þetta snerist um hvers konar óafgreiddum umsóknum um dvalarleyfi mætti vísa frá við endanlega ákvörðun um brottvísun. Þetta er nú eitthvað sem virðist kannski vera jaðartilvik, en Rauði krossinn vildi setja þarna varnagla þannig það mætti vísa óafgreiddum umsóknum um dvalarleyfi frá, en að rétt væri að veita undanþágu að teknu tilliti til mannúðarsjónarmiða, friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu og ef ríkar sanngirnisástæður leiddu til annarrar niðurstöðu. Þetta er bara sígilt dæmi um það. Það er kannski betra að vera með belti og axlabönd þegar mannúðin er annars vegar, að vera með mannúðina sem löggjafinn vill sýna inni í lagaákvæðunum sjálfum en ekki einhvers staðar reifaða í nefndarálitum eða greinargerðum.

En gott og vel. Þá er ég hér búinn að rekja í nokkrum ræðum þær breytingar sem hafa verið gerðar á lögunum frá gildistöku og raunar þær breytingar sem urðu á frumvarpinu í atkvæðagreiðslunni um frumvarpið sem varð að lögum nr. 80/2016. Ég vona að ég hafi náð að teikna upp þessa mynd, að þegar stigin hafa verið skref sem ég myndi segja að væru aftur á bak, í átt að íþyngjandi ákvæðum gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd, þá hafa Píratar alltaf staðið gegn skrefum í þá átt, oftast með liðsinni einhverrar blöndu Vinstri grænna, Samfylkingar og Viðreisnar, þangað til í seinni tíð þegar Vinstri græn gengu í ríkisstjórn og afhentu Sjálfstæðisflokknum lykilinn að dómsmálaráðuneytinu. Hins vegar þegar stigin hafa verið skref í ívilnandi átt, góð skref í þágu umsækjenda um alþjóðlega vernd, eins og gerðist þarna haustið 2017, þá er það akkúrat Sjálfstæðisflokkurinn, dómsmálaráðuneytisflokkurinn sjálfur, sem snýst gegn þeim breytingum. En aftur, eins undarlegt og það kann að virðast, þá varð það til þess að Vinstri græn verðlaunuðu flokkinn stuttu seinna með lyklunum að dómsmálaráðuneytinu.