útlendingar.
Herra forseti. Ég neyddist hér í lok síðustu ræðu til að skilja áheyrendur eftir í fullkominni óvissu um í hverju athugasemdir Solaris fælust, líkt og ítrekað gerist með fólk í leit að vernd á Íslandi, sem er gjarnan skilið eftir í fullkominni óvissu. Ég vil þá fá að grípa niður í umsögn Solaris, með leyfi forseta:
„1. gr. Í b-lið 1. gr. er lögð til sú breyting að eftirfarandi texta verði bætt við 25. tölul. 3. gr. laganna, að með umsækjanda um alþjóðlega vernd sé ekki átt við útlending sem fengið hefur endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi. Með þessu ákvæði er verið að leggja grunninn að því að svipta megi umsækjendur um alþjóðlega vernd grundvallarþjónustu eftir að þeim hafi verið birt lokasynjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Það ber að fordæma þessa tilraun íslenskra stjórnvalda til þess að endurskilgreina hverjir eru umsækjendur um alþjóðlega vernd í þeim eina tilgangi að grafa undan stöðu fólks og svipta það grunnþjónustu. Solaris leggst gegn slíkri breytingu á lögunum sem felur í sér að svipta eigi fólk á flótta mannréttindum sínum og tækifærum til þess að uppfylla grunnþarfir sínar.
2. gr. Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að ákvarðanir Útlendingastofnunar um synjun á efnislegri meðferð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli 36. gr. sæti sjálfkrafa kæru til kærunefndar útlendingamála nema umsækjandi óski þess sérstaklega að svo verði ekki. Greinargerð vegna slíkrar kæru, eða tilkynning um að hún verði ekki lögð fram, berist kærunefnd útlendingamála innan 14 daga frá birtingu ákvörðunar Útlendingastofnunar en teljist að öðrum kosti niður fallin. Solaris leggst gegn þessari breytingu þar sem hún er ekki til þess fallin að skerpa á málsmeðferð heldur svipta umsækjendur um alþjóðlega vernd ákvörðunarrétti sínum og réttlátri málsmeðferð.
4. gr. Í ákvæðinu er lagt til að á eftir 2. mgr. 17. gr. komi ný málsgrein, 3. mgr., þar sem kveðið er á um heimild lögreglu til að afla vottorða frá heilbrigðisyfirvöldum um líkamlegt og andlegt heilbrigði útlendings ef nauðsyn ber til að tryggja framkvæmd ákvörðunar um brottvísun eða frávísun hans skv. 104. gr. útl. Slíkra upplýsinga má, samkvæmt ákvæðinu, afla án samþykkis umrædds aðila. Solaris bendir á að slíkt felur í sér mikið inngrip í friðhelgi einkalífs fólks sem getur átt erfitt með að verjast slíku inngripi í líf þeirra vegna valdaójafnvægis einstaklinga og ríkisins. Ekki er að sjá að þau rök sem sett eru fram fyrir slíkum takmörkunum á mannréttindum fólks standist stjórnarskrá Íslands og mannréttindasáttmála Evrópu.
6. gr. Hér er lagt til að réttur umsækjenda um alþjóðlega vernd til þjónustu verði felldur niður 30 dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar í máli þeirra. Um er að ræða skerðingu á grundvallarmannréttindum eins og fæði, húsnæði og heilbrigðisþjónustu, sem er grundvöllur mannsæmandi lífs. Áhrifin af því að svipta fólk slíkri grundvallarþjónustu geta verið margþætt þar sem oft er um að ræða fólk í sérstaklega viðkvæmri stöðu og fæstir hafa tengslanet hér á landi. Slíkt hefur áhrif á velferð og heilsu fólks, stöðu þess og mannlega reisn. Ljóst er að fólk verður heimilislaust, neyð mun aukast og fólk verður berskjaldað gagnvart hvers konar ofbeldi og misnotkun. Verði slíkt ákvæði að lögum og komi það í framkvæmd er hætta á að íslensk stjórnvöld gerist sek um ómannúðlega meðferð á flóttafólki og gerist þar með brotleg við Mannréttindasáttmála Evrópu og aðra alþjóðasamninga. Gerð er alvarleg athugasemd við þetta ákvæði og dregið er í efa að það standist stjórnarskrá og alþjóðasamninga sem Ísland hefur skuldbundið sig til þess að vinna samkvæmt. Solaris leggst alfarið gegn ákvæðinu og hvetur íslensk stjórnvöld til þess að hverfa frá því.“
— Nú neyðist ég til að óska þess að fara aftur á mælendaskrá því að ég er engan veginn búinn að ljúka minni yfirferð.