153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[22:52]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Nú ætla ég að halda áfram þar sem frá var horfið og fara yfir fleiri umsagnir um útlendingafrumvarpið svokallaða.

Rauði krossinn á Íslandi sendi umsögn sína og í henni segir m.a., með leyfi forseta:

„Rauði krossinn hefur ítrekað gagnrýnt skort á samráði og samtali við aðila sem starfa í málaflokknum og hafa til þess sérþekkingu og reynslu við gerð frumvarpsins …“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem umsagnaraðili gagnrýnir að ekki hafi verið talað við sérfræðinga og fagaðila á þessu sviði. Rauði krossinn á Íslandi gagnrýnir 2. gr. sem snýr að sjálfkrafa kæru. Rauði krossinn á Íslandi leggst gegn þessu af tveimur ástæðum: Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru birtar umsækjendum á íslensku. Þær eru yfirleitt 10–20 blaðsíður og ekki þýddar yfir á önnur tungumál. Ákvörðunin er send talsmanni umsækjanda sem þarf í kjölfarið að bóka fund með viðkomandi og túlki sem oftast er ekki hægt að gera samdægurs.

Einnig talar Rauði krossinn um vanrækslu Útlendingastofnunar á rannsóknarskyldu sinni og að hún sýni ekki frumkvæði við að kanna hvort einstaklingur kunni að vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

„Reglulega kemur það upp að umsækjendur hafa ekki verið komnir með tíma í fyrstu heilbrigðisskoðun þegar þeir mæta til viðtals hjá Útlendingastofnun en í slíkri skoðun er skimað fyrir líkamlegum og andlegum veikindum. Í slíkum tilvikum er nauðsynlegt að bíða með ákvarðanatöku í málinu þar til gögn hafa orðið til og borist frá heilbrigðisyfirvöldum.“

Upplýsingar úr sjúkraskrá gefa oft „tilefni til frekari rannsóknar og greiningar á andlegum eða líkamlegum veikindum umsækjenda með öflun ítarlegri vottorða. Töluvert ber á því að Útlendingastofnun fellst ekki á að veita umsækjendum frest til að afla slíkra gagna sjálfir. Enn fremur eru umsækjendur ítrekað látnir bera hallann af því ef gögn skortir sem varpa ljósi á andlega eða líkamlega heilsu viðkomandi.“

Umsækjendur hafa þar af leiðandi „þurft að nýta kærufrestinn til þess að bæta upp fyrir vanrækslu stjórnvalda á rannsóknarskyldu sinni svo öll nauðsynleg gögn geti legið fyrir og talsmaður geti fjallað sérstaklega um í greinargerð á kærustigi“.

Í Noregi og Svíþjóð er kærufrestur í sambærilegum málum 21 dagur frá birtingu ákvörðunar.

Öflun vottorða frá heilbrigðisyfirvöldum án samþykkis umsækjenda, sem er þá 4. gr. laganna, felur í sér víðtækt inngrip í friðhelgi einkalífs fólks og þurfa ákveðin skilyrði því að vera uppfyllt svo að lagasetning sem þessi standist stjórnarskrá og alþjóðlega alþjóðaskuldbindingar.

„Frumskilyrði varðandi takmarkanir sem settar eru á friðhelgi einkalífs eru að þær séu í fyrsta lagi reistar á skýrri lagaheimild, stefni í öðru lagi að lögmætu markmiði og í þriðja lagi gangi ekki lengra en nauðsynlegt sé svo að markmið þeirra náist.“