153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[23:07]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég er að fara hérna yfir greinargerð með frumvarpi um mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta er smá formáli hjá mér, ég biðst afsökunar á því en hann er nauðsynlegur. Hérna aðeins seinna er farið yfir ákveðin dómafordæmi sem eru fyrir því að mannréttindasáttmálinn er talinn mikilvægur hér á landi, farið yfir röksemdir fyrir lögfestingu mannréttindasáttmála Evrópu, það er farið yfir samverkandi áhrif mannréttindasáttmálans og stjórnarskrár Íslands og svoleiðis, þannig að þetta skiptir mjög miklu máli í samhengi við þetta mál sem við ræðum hérna. Ég var kominn í kaflann um tvíeðli þjóðaréttar og Landsréttar, til að átta okkur á því hvernig mannréttindasáttmálinn er að hafa áhrif á það hvernig við vinnum samkvæmt honum, með leyfi forseta:

„Viðhorf um tvíeðli þjóðaréttar og landsréttar eru á hinn bóginn lögð til grundvallar í Bretlandi og á Írlandi, Möltu og Norðurlöndum, þar á meðal Íslandi. Í þessum ríkjum gildir þannig í meginatriðum sú regla að þjóðréttarsamningur telst ekki hluti af landsrétti og hefur þar með almennt ekki áhrif á réttarstöðu manna á yfirráðasvæði ríkisins nema samningurinn sé gerður að hluta af landsrétti með lagasetningu. Ríkin eru þó allt að einu skuldbundin að þjóðarétti gagnvart viðsemjendum sínum til að tryggja að landsréttur þeirra stangist ekki á við þjóðréttarsamninga þeirra. Ef horft er sérstaklega til mannréttindasáttmála Evrópu í þessu tilliti eru ýmsir kostir fyrir hendi til að tryggja þetta.

Í fyrsta lagi getur ríki aðlagað landsrétt sinn að þeim þjóðréttarskuldbindingum sem mannréttindasáttmálinn felur í sér. Ríkið verður þá að láta fara fram almenna athugun á því hvort einhverjar reglur í landsrétti þess stangist á við ákvæði sáttmálans og gera þá, ef þörf krefur, breytingar á slíkum reglum til þess að koma á samræmi. Aðlögun með þessum hætti felur það í sér að ríkið leitast við að efna þjóðréttarskuldbindingar sínar án þess að sáttmálinn sé gerður að hluta af landsrétti berum orðum, en í þess stað er gætt að því að landsrétturinn sé hvergi í andstöðu við sáttmálann. Síðan er unnt að tryggja aðlögunina enn frekar með því að skýra landsrétt til samræmis við ákvæði sáttmálans.

Í öðru lagi er hægt að gera mannréttindasáttmálann beinlínis að hluta af landsrétti með því að setja sérstök lög þar sem sáttmálinn í heild eða hluti hans er lögtekinn. Slík lögtaka eða lögfesting sáttmálans getur verið með ýmsu móti. Þannig er hægt að setja lög þar sem því er lýst yfir að þeir samningar, sem mynda mannréttindasáttmálann, skuli gilda sem lög í ríkinu. Einnig er sá möguleiki fyrir hendi að texti mannréttindasáttmálans sé lögtekinn í heild sinni, ýmist með tilvísun til sáttmálans sem slíks eða án þess að kenna lögin á nokkurn hátt við sáttmálann. Sé mannréttindasáttmálinn lögtekinn þarf að taka afstöðu til þess hver staða hans eigi að vera gagnvart annarri löggjöf ríkisins. Unnt er að gera ákvæði sáttmálans að hluta af eða jafnsett stjórnarskrá eða stjórnlögum ríkisins þannig að almenn lög, jafnt yngri sem eldri, yrðu að ríkja fyrir þeim. Lögfesting getur einnig átt sér stað með þeim hætti að ákvæði sáttmálans verði gerð að almennum lögum. Ósamþýðanleg eldri lög yrðu þá að meginreglu að víkja fyrir ákvæðum sáttmálans eftir almennum lögskýringarreglum, en lagagildi sáttmálans stæði því hins vegar ekki í vegi að yngri lög yrðu sett í andstöðu við hann.

Loks er í þriðja lagi hugsanlegt að ríki leitist hvorki við að aðlaga landsrétt að ákvæðum mannréttindasáttmálans né lögtaki þau, heldur standi löggjöf óbreytt þrátt fyrir aðild að sáttmálanum. Eftir kenningum á sviði þjóðaréttar ber þó dómstólum og eftir atvikum stjórnvöldum að skýra landsrétt til samræmis við ákvæði sáttmálans. Þetta getur þó aðeins gengið að því leyti sem mögulegt er að sveigja til efni landsréttar með lögskýringu, en sé það ekki hægt verður landsrétturinn að halda velli og þjóðréttarreglan að ríkja. Með þessu móti getur verið undir hælinn lagt hvort ríki takist að efna þjóðréttarskuldbindingar sínar samkvæmt sáttmálanum, en augljós hætta er á að skuldbindingarnar verði vanefndar þegar ógerlegt reynist að samræma landsrétt ákvæðum sáttmálans með lögskýringu einni sér.“

Ég bið forseta vinsamlegast um að setja mig aftur á mælendaskrá svo ég geti haldið áfram yfirferð minni.