153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[23:25]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að ljúga; þegar ég bankaði í borðið og bað um orðið þá ætlaði ég að láta setja mig aftur á mælendaskrá til að taka til máls um útlendingafrumvarpið. En fyrst ég er komin hingað upp langar mig bara að koma því á framfæri að ég sakna stjórnarliðanna. Og veistu það, virðulegi forseti, að þá morgna sem ég mæti í þingsal og er t.d. að greiða atkvæði um dagskrártillögu Pírata, jafnvel þó að hún sé vissulega alltaf felld, þá hlýnar mér um hjartaræturnar af því að ég sé svo marga stjórnarliða sem ég sé aldrei í öðrum umræðum hér í þingsal. Mér finnst samstaðan bara vera svo mikil. Jú, það er vissulega verið að fella dagskrártillöguna okkar og það er verið að greiða atkvæði með lengd þingfundar, sem þeir eru svo sem ekkert að taka þátt í, en það er samt mjög gaman að sjá þau. Og líka þegar það er umræða um störf þingsins og óundirbúnar fyrirspurnir. Ég elska þennan í þingsal þegar hann er fullur af stjórnarliðum og ég vildi svo innilega að þau tækju þátt í þessari umræðu með okkur í dag út af því að þau greiddu vissulega atkvæði með því að lengja þingfundinn. Hvers vegna er verið að greiða atkvæði með því að lengja þingfundinn ef þau ætla ekki að taka til máls?