153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[23:26]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Já, ég er nú svona beggja blands með eða hvort ég eigi að taka undir með hv. samflokksmönnum mínum um það að sakna stjórnarliða sérstaklega í þessari umræðu. Þau eru vissulega áberandi fjarverandi. En þessi umræða er náttúrlega bara tímaskekkja vegna þess að í raun ætti að fara fram umræða í allsherjar- og menntamálanefnd til að fullvinna þetta mál, sem er verulega vanreifað eins og það kom hér til þingsins. Umfjöllun nefndarinnar fyrir 2. umr. var einfaldlega ekki búin, eins og sést á öllum þeim umsögnum sem við höfum verið að rekja hér í okkar ræðum sem ekkert var brugðist við. Það skiptir ekki svo miklu máli hversu mikið stjórnarliðar taka þátt í þessari umræðu. Það sem þau ættu að gera er að taka þetta mál aftur í hús, skila inn framhaldsnefndaráliti frá allsherjar- og menntamálanefnd þar sem er tekið tillit til þeirra umsagna sem benda á möguleg brot á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, mannréttindaskuldbindingum ýmsum, og skila þessu máli fullunnu til þingsins frekar en að við séum hérna að reifa umsagnir sem þau eru búin að hunsa margoft.