153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[23:27]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Já, mér er það ljúft og skylt að taka undir með hv. þm. Andrési Inga Jónssyni að best væri náttúrlega að málið færi þangað sem það á heima, inn í nefnd þannig að það sé hægt að fullvinna það og klára það, að við fáum hér fullunna afurð til að vinna úr, eitthvað sem hægt er að nýta til gagns. En þar sem það virðist ekki vera í boði, alla vega ekki að svo stöddu, þá er náttúrlega eini valkosturinn að við höldum áfram að ræða málið hér. Best væri náttúrlega að fólkið sem styður þetta frumvarp kæmi hér og segði okkur hinum hvað það er sem við erum að misskilja, því að ég lýsi því yfir enn og aftur: Ég trúi því varla að við séum að tala um sama hlutinn miðað við hversu mismunandi sjónarhorn fólk hefur á því.