153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[23:29]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Mig langar bara að koma hingað upp og lýsa yfir ánægju minni með að hv. 11. þm. Suðvest., Ágúst Bjarni Garðarsson, sé mættur hérna í hliðarsal. Vissulega er hann ekki taka þátt í umræðunni, en eins og ég sagði áðan þegar hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir labbaði hér fram hjá en tók ekki til máls þá er samt gaman að sjá andlitið á þeim. Mig langaði bara að segja að Píratar eru ekki með einokunarrétt á þessari pontu, bara alls ekki. Þessi umræða er ekki bara okkar, við viljum að annað fólk taki þátt í þessari umræðu með okkur. Eins og ég sagði: Þetta er auðvitað lýðræðisleg umræða og ástæðan fyrir því að við erum að draga þessa umræðu svona á langinn er í fyrsta lagi að það eru rosalega margir efnislegir og lagalegir annmarkar á þessu glataða frumvarpi. En í öðru lagi viljum við líka gefa stjórnarþingmönnum færi á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri áður en við förum í atkvæðagreiðslu um þetta mál, ef það endar í atkvæðagreiðslu, og þá verður rosalega mikill slagur í atkvæðaskýringum og allir að réttlæta sínar skoðanir þegar það væri bara auðveldast komi hingað og taka til máls í 2. umr.