útlendingar.
Frú forseti. Já, áheyrendur eru ábyggilega afar spenntir að heyra meira um athugasemdir Solaris og ég held að það sé þá ekki eftir neinu að bíða og held því áfram. Með leyfi forseta langar mig að grípa aftur niður í umsögn Solaris um frumvarp um breytingu á útlendingalögum.
„7. gr. Í 7. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um sérstaka málsmeðferð þegar um er að ræða svokallaðar endurteknar umsóknir. Þótt ákvæðið sé að mestu leyti óbreytt frá því frumvarpið var lagt fram síðast hefur orðalaginu nú verið breytt þannig að það skerði enn frekar möguleika fólks á flótta til þess að fá umsókn sína um alþjóðlega vernd tekna til efnismeðferðar. Í ákvæðinu er lagt til aukaskilyrði um að endurtekinni umsókn skuli vísað frá, fylgi henni ekki gögn eða upplýsingar sem leiði til þess að sýnilega auknar líkur séu á að umsækjanda verði veitt vernd, dvalarleyfi hér á landi eða að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar og þau gögn eða upplýsingar hafi ekki legið fyrir við fyrri málsmeðferð. Hér gera stjórnvöld enn eina tilraunina til þess að skerða réttindi fólks á flótta og draga úr líkunum á því að það fái alþjóðlega vernd á Íslandi. Þetta ákvæði er fyrst og fremst til þess fallið að auðvelda stjórnvöldum að hafna umsóknum um alþjóðlega vernd án þess að þurfa að taka tillit til hverrar umsóknar fyrir sig. Slíkt stangast á við lagalegar og siðferðislegar skyldur stjórnvalda. Lagst er gegn þessari breytingartillögu.
8. gr. Í 8. gr. er að finna breytingartillögu sem felur í sér verulegar takmarkanir á möguleikum þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í öðru ríki til að fá umsókn um alþjóðlega vernd tekna til efnismeðferðar hér á landi. Þessi tillaga, sem hefur mætt mikilli andstöðu, er nú samt sem áður lögð fram í fimmta sinn. Tillagan hefur það að markmiði að útiloka þá sem þegar hafa fengið alþjóðlega vernd frá því að fá efnislega meðferð hér á landi, algjörlega óháð aðstæðum hvers umsækjanda sem og aðstæðum í því ríki sem hin svokallaða vernd fékkst. Ítrekað hefur verið bent á grafalvarlegar og oft lífshættulegar aðstæður fólks sem hingað kemur í leit að vernd þrátt fyrir að hafa fengið vernd í öðru ríki, eins og til dæmis Grikklandi, Ítalíu og Ungverjalandi, þar sem aðstæður fyrir fólk á flótta eru verulega slæmar, eins og ítrekað hefur verið sýnt fram á, m.a. af Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum mannréttindasamtökum. Mikilvægt er að útiloka ekki með þessum hætti möguleika fólks á að fá umsókn sína um vernd tekna til efnismeðferðar. Slíkt er skerðing á réttindum flóttafólks. Solaris leggst alfarið gegn þessari breytingartillögu. Gerð er alvarleg athugasemd við tillögu frumvarpsins þar sem lagt er til að svipta skuli málsaðila rétt til efnismeðferðar ef túlkun löggjafans er slík að „umsækjandi á einhverjum tíma að hafa tafið mál sitt“. Túlkunarramminn, sem í frumvarpinu birtist um hvað telst til málstafar, stangast á við raunveruleika fólks á flótta og aðgengi þeirra að opinberum og/eða auðkennandi skjölum. Þá tekur Solaris undir gagnrýni Barnaheilla við tillögu frumvarpsins um sviptingu á málsmeðferð í ljósi skuldbindinga Íslands til Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem og alþjóðlegar skuldbindingar ríkisins í málefnum fatlaðra. Óljóst er hvernig löggjafinn mun tryggja að réttur umsækjanda sé tryggður í túlkun á „samstarfsvilja“ og hvernig löggjafinn munu sýna þekkingu á aðstæðum fólks á flótta í túlkun á löglegri og ólöglegri notkun á opinberum skjölum, mætingu í læknisskoðanir eða viðtöl.“
Mér mun ekki takast að klára þessa yfirferð og óska ég því eftir, frú forseti, að fara aftur á mælendaskrá.