útlendingar.
Frú forseti. Hér í síðustu ræðu gafst mér ekki alveg tækifæri til að ljúka umfjöllun um einstaklinga sem hafa fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd á Íslandi en geta ekki snúið til baka til heimalands síns af ýmsum ástæðum. Fólk sem hefur sem sagt ekki eiginlegt leyfi til að dveljast á Íslandi getur eiginlega ekki annað og stjórnvöld geta ekki brottvísað þeim þannig að dvöl þeirra er umborin hér á landi. Rauði krossinn varpaði ljósi á þennan hóp með skýrslu sem var gerð núna síðastliðið haust.
Það sem mig langar að nefna hérna í minni síðari ræðu um þennan hóp er hvað mér þykir undarlegt að meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar hafi ekkert brugðist við ábendingum Rauða krossins um stöðu fólks í þessari stöðu. Þetta er skýrsla sem var send dómsmálaráðuneytinu 3. nóvember sl. og Alþingi skráði hana síðan til bókar 30. nóvember. Þá var hún færð undir það frumvarp sem við fjöllum um hér í dag, tveimur vikum áður en allsherjar- og menntamálanefnd afgreiddi útlendingafrumvarpið út til 2. umr., þannig að tíminn var fyrir hendi til að bregðast við. — Nei, ég er að ýkja hér; þetta var afgreitt úr nefnd 6. desember en 30. nóvember barst þinginu skýrsla Rauða krossins.
Rauði krossinn bendir á tvennt í frumvarpinu sem mun hafa mjög slæm áhrif á þennan hóp. Annars vegar séu líkur á því að það muni fjölga til muna í hópnum. Ég man ekki í hvaða grein það var, en að það muni fjölga í hópi þeirra sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni en eru í þeirri stöðu að stjórnvöld geta ekki vísað þeim úr landi. En í frumvarpinu er lögð til grundvallarbreyting á réttindum þessa fólks með því að fella niður rétt þess til þjónustu 30 dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar í máli þeirra. Rauði krossinn segir að afleiðingar þessa yrðu gríðarlegar og margvíslegar á stöðu, velferð og bara mannvirðingu umsækjenda um alþjóðlega vernd. Með því að réttur til framfærslu, húsnæðis og heilbrigðisþjónustu fellur niður þá er hætta á að alvarleg vandamál skapist, en það er væntanlega tilgangurinn með þessu ákvæði. Þjónustusviptingin virkar þannig sem svipa á umsækjendur. Fólk sem er í þeirri stöðu að stjórnvöld geta ekki framkvæmt þvingaða brottvísun verður þannig pískað til að koma sér sjálft úr landi eða, sem er kannski enn meira áhyggjuefni, neytt til þess að velja á milli þess að vera heimilislaust og allslaust á Íslandi eða að koma sér einhvern veginn til baka til landsins sem þau eru að flýja. Þar erum við að tala um, eins og kemur fram í skýrslu Rauða krossins þar sem farið yfir þennan hóp fólks í umborinni í dvöl, t.d. einstaklinga frá Nígeríu. Þar er t.d. kona sem er þolandi mansals og vill ekki lenda í því aftur, sem Rauði krossinn ræðir við, eða hópur fólks sem ekki vill fara aftur til Íraks þar sem það telur sig eiga eitthvað slæmt í vændum. (Forseti hringir.) Þetta er ekki góð aðferð til að koma fólki úr landi.