153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[23:42]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég var að fara yfir greinargerð frumvarpsins um mannréttindasáttmála Evrópu. Í einum kafla hennar segir, með leyfi forseta:

„Í þeim aðildarríkjum að mannréttindasáttmálanum, þar sem er gengið út frá tvíeðli landsréttar“ — sem kaflinn fjallar um — „og þjóðaréttar, hafa verið farnar misjafnar leiðir til að efna skuldbindingarnar sem sáttmálinn felur í sér. Á Norðurlöndum, að Finnlandi frátöldu, var þetta lengst af gert með aðlögun að áðurnefndum hætti. Var þannig í öndverðu hugað að því við fullgildingu mannréttindasáttmálans hvort reglur landsréttar væru í einhverjum atriðum andstæðar ákvæðum sáttmálans og breytingar þá eftir atvikum gerðar á landsrétti til samræmingar. Upp frá því var reynt að halda þessu samræmi, bæði við setningu nýrra laga og með breytingu eldri laga þegar ósamræmi milli þeirra og sáttmálans hefur komið í ljós á síðari stigum. Segja má að hér á landi hafi að einhverju leyti verið leitast við að aðlaga landsrétt að ákvæðum mannréttindasáttmálans, en því verður hins vegar ekki á móti mælt að á sumum sviðum hefur verið látið reka á reiðanum í trausti þess að ákvæði íslenskra laga samrýmdust ákvæðum sáttmálans. Verður vikið að þessu nánar hér á eftir.“

Tilvitnun lýkur í bili. Þetta er sem sagt mikilvæga atriðið sem er verið að vekja athygli á. Þess vegna varð dómur Mannréttindadómstólsins gegn Þorgeiri Þorgeirssyni, þar sem íslenska ríkið var talið brjóta á tjáningarfrelsi hans þegar hann skrifaði um lögregluna í grein sinni í blöðin vegna ofbeldis lögreglunnar í miðbæ Reykjavíkur — það gerði það að verkum að það sást greinilega að lögin samrýmdust ekki ákvæðum sáttmálans. Þá er spurningin: Hvernig á að laga það? Þá held ég áfram, með leyfi forseta:

„Stefnubreyting hefur hins vegar orðið í þessum efnum á undanförnum árum annars staðar á Norðurlöndum. Í Danmörku var mannréttindasáttmálinn lögfestur 29. apríl 1992, en sáttmálinn nýtur eftir það stöðu sem almenn lög í dönskum landsrétti. Í Noregi hefur nefnd unnið að gerð tillagna um lögfestingu mannréttindasáttmálans. Í Svíþjóð er starfandi nefnd sem á að gera tillögur um hvernig hægt verði að taka ýmis mikilvæg ákvæði mannréttindasáttmálans efnislega inn í stjórnlög ríkisins. Í Finnlandi var mannréttindasáttmálinn gerður að hluta landsréttar með sérstökum lögum á árinu 1990, en Finnland gekk fyrst í Evrópuráðið og fullgilti mannréttindasáttmálann á árinu 1989. Í Bretlandi og á Írlandi mun hafa verið fylgt þeirri stefnu að aðlaga landsrétt að ákvæðum mannréttindasáttmálans, en á Möltu hefur sáttmálinn verið lögfestur.“

Þá er það gildi sáttmálans að Landsrétti:

„Í þeim aðildarríkjum að mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem ákvæði hans eru hluti af landsrétti, koma afleiðingarnar af því meðal annars fram á þann hátt að ákvæði sáttmálans eru gildandi lagareglur innan lands og er þá unnt að bera þau fyrir sig eins og hverja aðra réttarreglu í dómsmáli, fyrir stjórnvöldum eða á öðrum vettvangi þar sem getur reynt á þær. Í þeim aðildarríkjum, þar sem þjóðréttarsamningar verða ekki sjálfkrafa hluti af landsrétti og mannréttindasáttmálinn hefur ekki verið lögfestur sérstaklega, hefur hins vegar almennt verið talið að ekki verði gengið lengra en að styðjast við ákvæði sáttmálans sem röksemd fyrir tiltekinni skýringu á gildandi réttarreglu í ríkinu. Gildi mannréttindasáttmálans að landsrétti skiptir þannig máli um það hvort ákvæðum hans verði beitt beinlínis sem réttarreglum í viðkomandi ríki eða aðeins sem röksemd fyrir lögskýringu.“

Upplag alls þessa er einmitt þegar við erum komin í þá stöðu að þurfa að skilgreina mannréttindi eins skýrt og raunin er í mannréttindasáttmála Evrópu, þ.e. frá mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna yfir í mannréttindasáttmála Evrópu og í þær spurningar hvernig við getum gert það bindandi sem upprunalega var bara yfirlýsing í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar og allra þeirra mannréttindabrota sem þar voru framin. (Forseti hringir.) — Ég bið forseta vinsamlegast um að setja mig aftur á mælendaskrá.