153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[23:53]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Frú forseti. Ég ætla að halda áfram þar sem ég lét staðar numið síðast, en þar var ég að tala um óskráðar meginreglur stjórnsýsluréttarins. Ég var komin að undantekningum á skilyrðum sem þarf að uppfylla til að virkja andmælaréttinn hjá aðila máls. Ég sé ekki þörf á því að fara aftur yfir þessar reglur, ég held þetta sé bara frekar sjálfgefið. Og eins og ég talaði um hér áðan finnst mér frekar ólíklegt að þessar undantekningar eigi við í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd þó svo að þeir séu aðilar máls. En samt sem áður þá er annað nauðsynlegt til þess að virkja andmælaréttinn og það er tilkynningarskyldan.

Tilkynningarskyldan er 14. gr. stjórnsýslulaga, ekki andmælarétturinn. Andmælaréttur er náttúrlega óskráð meginregla, afsakið þetta, forseti, nú man ég þetta. Síðar verður komið að upplýsingarétti sem er óskráð meginregla að einhverju leyti í stjórnsýslurétti. Um hana er fjallað í 15.–19. gr. stjórnsýslulaga en hún er ríkari þar en samkvæmt upplýsingalögum, þ.e. upplýsingarétturinn í stjórnsýslulögunum er ríkari en upplýsingarétturinn í upplýsingalögum. Og upplýsingarétturinn í upplýsingalögum, það eru sumir lögaðilar sem geta fengið undanþágu frá upplýsingalögum, sem er frekar merkilegt. Kannski förum við út í það seinna.

Þessi upplýsingaréttur sem ég er að tala um, sem er kveðið á um í 15.–19. gr. stjórnsýslulaga, er kæranlegur ef máli lýkur skv. 1. mgr. 19. gr. stjórnsýslulaga. Upplýsingaréttur í stjórnsýslulögum er einnig með undanþágur en þar undir eru gögn sem eru tekin saman fyrir fundi ráðherra, ríkisráðs eða verða til á slíkum fundum. 15.–19. gr. stjórnsýslulaga gilda ekki um þau gögn.

Bréfaskipti stjórnvalda við sérfróða menn til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað eru undanþegin 15.–19. gr. stjórnsýslulaga sem og vinnuskjal stjórnvalda skv. 1. mgr. 16. gr. laganna. Það eru undantekningar á því líka, þ.e. það eru skjöl sem hafa að geyma endanlega ákvörðun um afgreiðslu máls og upplýsingar sem ekki verður aflað annars staðar frá.

Þetta eru þeir hlutir sem eru með undanþágu frá upplýsingarétti stjórnsýslulaganna.

Að lokum er það líka 17. gr. laganna, þ.e. ef upplýsingar eru andstæðar almanna- eða einkahagsmunum. Ég held að það liggi frekar skýrt fyrir, ég ætla bara að taka lata löggjafann á þetta og segja: Ákvæðið þarfnast ekki frekari skýringa. Þetta er minnst uppáhaldssetningin mín í lögum, frú forseti. Það lætur mig alltaf hugsa bara: Hvaða vanhæfi löggjafi skrifaði þessi lög? Víst þarfnast þetta fleiri skýringa, en ég ætla ekki að hengja mig á það akkúrat núna í umræðum um útlendingalögin.

Til að setja þetta í samhengi við útlendingalögin þá er upplýsingaréttur stjórnvalda í stjórnsýslulögum frekar ríkur en samt sem áður ná undanþágurnar í upplýsingarétti ekki til persónuupplýsinga umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ég man ekki hvaða lagaákvæði það var, mig minnir að það hafi verið í 7. gr. frumvarpsins þar sem lögreglunni eða öðrum bærum yfirvöldum er veitt heimild til að afla sjúkravottorðs einhvers umsækjenda ef þeir telja að það sé nauðsynlegt til að varpa skýrara ljósi á málið hjá þessum einstaklingi. Og það má afla þessara gagna án þess að viðkomandi aðili viti bara eitthvað af þessu. Það er náttúrlega bara — ég ætla ekkert að fara að nota stór orð hérna og segja að þetta sé andstætt persónuverndarlögum og eitthvað þannig, en þetta gengur vissulega á friðhelgi einkalífs einstaklingsins. Og þessar upplýsingar, það er alveg hægt að færa rök fyrir því að stjórnvöld séu undanþegin upplýsingalögum samkvæmt stjórnsýslulögum, en nei, við eigum að fara eftir einhverjum allt öðrum málsmeðferðarreglum sem verða settar í lög um útlendinga jafnvel þó að við séum að fara eftir málsmeðferðarreglum í núgildandi framkvæmd, málsmeðferðarreglum í almennum stjórnsýslulögum. Það er ekki bara verið að umbylta lagabálknum, virðulegi forseti, það er verið að umbylta allri framkvæmdinni sem hefur verið venjuhelguð. Mér finnast þetta bara vera frekar skítleg vinnubrögð. Hver heldur hæstv. dómsmálaráðherra að hann sé? Ætlar hann bara að setja einhver ný tímamótalög? Bara fyrirgefðu, það eru engin lög að fara að toppa almennu stjórnsýslulögin.