útlendingar.
Frú forseti. Ég vék hér fyrr í kvöld að áhyggjum sem lýst hefur verið af því hvernig ákvæðum um fjölskyldusameiningar verður breytt þannig að réttur kvótaflóttafólks þrengist eða þannig að það verði örðugt fyrir kvótaflóttafólk að sameinast fjölskyldum sem íslenska ríkið vissi ekki að væru til staðar þegar einstaklingur var samþykktur sem kvótaflóttamaður til landsins. Mér finnst þetta vera dálítið gott dæmi um það hvernig skortur á mati á jafnréttisáhrifum birtist víðs vegar og ekki alltaf í þessum hefðbundnari jafnréttisáhrifum sem stjórnsýslan er nú að verða aðeins flinkari við að meta, jafnrétti karla og kvenna. En í þeim málum sem útlendingalög fjalla um er svo oft um margar mismununarbreytur að ræða og miklu flóknara að taka á því, þannig að ef frumvarpshöfundar hefðu ekki kastað til höndunum við jafnréttismat almennt þá hefðu þeir kannski hnotið um áhrif laganna á ýmsa aðra jaðarsettra hópa eins og t.d. hinsegin hælisleitendur, sem Samtökin ´78 hafa vakið sérstaka athygli á.
Samtökin sendu inn umsögn núna við þingbyrjun í janúar. Eftir að meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar hafði afgreitt málið út kemur umsögn frá samtökunum þar sem þau lýsa miklum áhyggjum af þessu vandræðum sem muni skapast í kringum fjölskyldusameiningu við útlending sem hefur verið boðið hingað til lands af stjórnvöldum, svokallaðan kvótaflóttamann. En svo minna þau okkur á stærra vandamál, þetta er bara angi af stærra vandamáli en samtökin hafa náttúrlega rekið sig á að einstaklingar sem leita til þeirra hafa ekki borið Útlendingastofnun allt of góða sögu þar sem þau hafa ítrekað þurft að sannreyna sinn hinseginleika og jafnvel þurft að ganga ansi langt til að reyna að sýna fram á að þau tilheyri þessum hópi.
Ég held að við sem fengum að sjá skopstælingu á þessu í áramótaskaupinu getum tekið undir með umsagnarhöfundum að svona vinnubrögð séu ófagleg. Þau eru náttúrlega til þess fallin að brjóta á mannréttindum þessara einstaklinga og þetta gerir líka svo lítið úr þeirra stöðu. Við erum kannski stundum föst í þessari búblu okkar þar sem við erum sannfærð um að heimurinn sé að reyna að vera jafn góður og Ísland í mörgum atriðum, en þegar kemur að stöðu hinsegin fólks t.d. þá er það bara alls ekki raunin. Það er 41 ríki sem refsar fyrir hinseginleika. Ég kannast ekki við að það sé neitt hægt að kortleggja almennilega t.d. stöðu hinsegin fólks innan hóps hælisleitenda, hóps þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd, vegna þess að það er einfaldlega ekki haldið almennilega utan um þessar upplýsingar. En sama má svo sem segja um ýmislegt annað, það er ekki til sérstök tölfræði um t.d. þá einstaklinga sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi miðað við fötlun eða veikindi, þó að sérstaklega sé talað um að það eigi að meta t.d. viðkvæma stöðu fólks út frá fötlun eða veikindum.